Sport

Vonn vill fá að keppa gegn karlmönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lindsey Vonn hefur átt ótrúlegan feril.
Lindsey Vonn hefur átt ótrúlegan feril. vísir/getty
Bandaríska skíðasambandið ætlar sér að mæta á fund hjá alþjóða skíðasambandinu og berjast fyrir því að skíðakonan Lindsey Vonn fái að keppa gegn karlmönnum.

Vonn er ein besta skíðakona allra tíma. Hefur unnið til verðlauna á Ólympíuleikum og unnið þess utan 77 heimsbikarmót. Hún er aðeins níu sigrum frá meti Ingemar Stenmark sem er búið að standa ansi lengi.

„Ég veit ég mun ekki vinna gegn körlunum en ég vil fá tækifæri til þess að reyna það. Mér finnst ég hafa unnið mér inn þetta tækifæri,“ segir Vonn.

Hún reyndi að fá að keppa með körlum árið 2012 en þá var beiðni hennar hafnað. Þetta er líklega hennar síðasta tækifæri enda ætlar hún að leggja skíðin á hilluna eftir tvö ár. Vonn er orðin 32 ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×