Tónlist

Bubbi er hrifinn af laginu B.O.B.A.

Guðný Hrönn skrifar
Bubba þykir lag JóaPé og Króla flott.
Bubba þykir lag JóaPé og Króla flott.
Lagið B.O.B.A með JóaPé og Króla er eitt vinsælasta lag Íslands um þessar mundir en það byggir á fleygum orðum sem tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens lét flakka í beinni útsendingu á sínum tíma, árið 2002 nánar tiltekið. Þá ætlaði Bubbi að stafa orðið „bomba“ en í miklum ákafa gleymdist einn bókstafur.

„Lagið er flott,“ segir Bubbi spurður út í hvernig honum lítist á lagið B.O.B.A. og þá staðreynd að mismæli hans spili stórt hlutverk í laginu. „Þetta var í beinni box-lýsingu, ég var búin að tapa mér í æsingi og henti m-inu út um gluggann. Þannig varð boba-frasinn til. Gaman að þessu,“ segir Bubbi.

Þess má geta að JóiPé og Króli eru fæddir árið 2000 og 1999 og voru því mögulega enn þá að nota snuð þegar Bubbi gerði tilraun til að stafa „bomba“ á eftirminnilegan hátt.


Tengdar fréttir

Litli frændi forsetans kveikir í internetinu

JóiPé og KRÓLI gáfu út lagið B.O.B.A. á mánudaginn og síðan þá hefur íslenska internetið vera í ljósum logum. Þeir ætla að gefa út plötu á morgun þannig að það má eiga von á fleiri sprengjum á næstunni frá þessum kornungu félögum sem eru bara rétt að byrja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×