Íslenski boltinn

Spilaði í gegnum sársaukann í allt sumar og landaði titlinum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kveikjum eldana. Það var boðið upp á blys og almenna stemningu er Þór/KA fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í gær.
Kveikjum eldana. Það var boðið upp á blys og almenna stemningu er Þór/KA fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í gær. vísir/þórir tryggvason
Mikil dramatík ríkti fyrir síðustu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA var með tveggja stiga forskot á Breiðablik, sem var með mun betri markatölu en norðanstúlkur. Blikar gátu því stolið titlinum með sigri, svo lengi sem Þór/KA ynni ekki sinn leik.

Lengi vel leit út fyrir að bikarinn væri á leið í Kópavoginn, því Blikar áttu ekki í neinum vandræðum með Grindvíkinga á meðan Þór/KA gekk erfiðlega að vinna sig í gegnum þétta vörn FH.

Fyrirliðinn Sandra María Jessen braut að lokum ísinn fyrir Þór/KA um miðjan seinni hálfleik og besti leikmaður Íslandsmótsins, Sandra Stephany Mayor, gulltryggði svo sigur Akureyringa á 78. mínútu.

Halldór Jón þurfti að þurrka tárin úr augunum í leikslokvísir/þórir tryggvason
Ekkert gaman að klára þetta auðveldlega

„Þetta er ólýsanlegt. Það er ekki hægt að útskýra svona tilfinningar,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA, eftir leikinn í gær. „Ég er svo stoltur af stelpunum og stoltur af fólkinu, þvílíkur stuðningur sem við fáum og þetta bara skiptir öllu máli og gerir gæfumuninn í dag.“

Fyrsta tímabil Halldórs Jóns með liðið gæti ekki hafa farið betur og segist hann aldrei hafa efast um að stelpurnar myndu klára þetta.

„Þetta súmmerar bara frekar vel sumarið upp hjá okkur. Við spilum virkilega góðan varnarleik, allan leikinn, eins og við höfum gert í sumar. Skorum svo bara frábær mörk. Það er ekkert gaman að klára þetta bara auðveldlega.“

Norðanstúlkur fagna marki í Þorpinu í gær.vísir/þórir tryggvason
Spilaði í gegnum sársaukann

Lillý Rut Hlynsdóttir var einnig í skýjunum. „Það eru engin orð. Þetta er bara geggjað lið og allir í kringum þetta, við værum ekki hérna án þeirra. Ólýsanlegt,“ sagði Lillý. 

Lillý Rut er búin að glíma við meiðsli í allt sumar, en hún segist ekki sjá eftir því að hafa harkað þau af sér og spilað í gegnum sársaukann: 

„Þetta var alveg þess virði, að spila svona í allt sumar. En ég er öll að koma til. Besta ákvörðun sem ég hef tekið held ég.“

Þór/KA hefur einu sinni áður hampað Íslandsmeistaratitlinum, en það var árið 2012. Lillý Rut var í liðinu þá, en segist ekki geta borið þetta tvennt saman. 

„Ég missti af síðasta leiknum 2012, þannig að ég hef ekki upplifað þetta áður, að taka á móti titlinum. Þetta er öðruvísi.“

Blikar völtuðu yfir Grindavík, 4-0, en það dugði ekki til þar sem örlögin voru ekki í þeirra höndum. „Það var alveg vitað fyrir leikinn að við gátum ekki gert meira en að vinna. Þetta var gott dagsverk hjá okkur en ekki nóg,“ sagði Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, eftir leikinn.

„Við gerðum mistök á fyrri hluta tímabilsins og þau reyndust dýrkeypt,“ sagði Rakel. 

„Það er flottur árangur að lenda í 2. sæti. En akkúrat núna er ég ekkert voðalega ánægð.“


Tengdar fréttir

Rakel: Akkúrat núna er ég ekkert voðalega ánægð

Rakel Hönnudóttir skoraði eitt marka Breiðabliks í 4-0 sigrinum á Grindavík í dag. Sigurinn dugði þó Blikum ekki til að verða Íslandsmeistari því á sama tíma vann Þór/KA 2-0 sigur á FH og tryggði sér titilinn.

Donni: Ólýsanleg tilfinning

Íslandsmeistaratitillinn fór á loft á Akureyri eftir 2-0 sigur Þórs/KA á FH í dag




Fleiri fréttir

Sjá meira


×