Innlent

Gunnar Bragi hættir í Framsóknarflokknum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson saman á þinginu þegar þeir voru báðir enn í Framsóknarflokknum. Nú eru þeir báðir hættir í flokknum og hefur Sigmundur Davíð stofnað nýjan flokk, Miðflokkinn.
Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson saman á þinginu þegar þeir voru báðir enn í Framsóknarflokknum. Nú eru þeir báðir hættir í flokknum og hefur Sigmundur Davíð stofnað nýjan flokk, Miðflokkinn. vísir/gva
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra og sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að segja sig úr Framsóknarflokknum. Að sama skapi dregur hann framboð sitt í Norðvesturkjördæmi til baka.

Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni í langri og ítarlegri færslu. Hann segir ekki ljóst hvað taki við hjá honum en það skýrist á næstu dögum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, hefur stofnað nýjan flokk, Miðflokkinn, en alþekkt er að Gunnar Bragi hefur verið á meðal ötulustu stuðningsmanna Sigmundar. Hann gefur hins vegar ekkert upp um það hvort hann ætli að ganga til liðs við Miðflokkinn.

„Ég fæddist í Framsókn og ég mun deyja í Framsókn“

Í færslunni segir Gunnar Bragi að hann muni ekki svara fyrirspurnum fjölmiðla í dag en þegar fréttastofa náði tali af Gunnari Braga þann 18. september síðastliðinn til að kanna hvort hann ætlaði að bjóða sig aftur fram til Alþingis og þá fyrir Framsóknarflokkinn sagði Gunnar Bragi við blaðamann:

„Ég fæddist í Framsókn og ég mun deyja í Framsókn.“

Ekki er hægt að segja annað en að Gunnar Bragi sé á nokkuð einlægum nótum í færslu sinni á Facebook. Hann segist sitja með hnút í maganum þar sem hann riti færsluna enda sé ekki létt að hverfa á braut.

Hann kveðst kveðja flokkinn með mikilli sorg en segist sáttur við framlag sitt til hans. Gunnar Bragi segir hins vegar Framsóknarflokkinn klofinn og þar sé stundaður kafbátahernaður.

Segir allar líkur á að hann myndi hrökklast úr þingflokki Framsóknar ef hann bjóði sig fram

„Framsóknarfélagið mitt er klofið og ég sé að fólki er skipt í fylkingar. Gamla góða vinalega kveðjan er í sumum tilfellum orðin í besta falli kurteisisleg. Þetta á ekki að vera svona, þetta þarf ekki að vera svona. Öllu þessu mátti forða hefðu menn hlustað eða komið hreint fram. Því miður er það nú að rætast sem ég og fleiri vöruðum við og ég sagði við marga vini mína síðla sumars 2016 í upphafi innanflokksátakanna.

Þegar svona er komið þá veltir maður framtíðinni fyrir sér. Vil ég vinna í þessu umhverfi? Get ég unnið með fólki sem starfar með þessum hætti eða lætur það viðgangast? Ég hef undanfarið hitt eða hringt í fjöldann allan af frábæru fólki sem ýmist hvetur mig til að taka slaginn, “ekki láta þá komast upp með þetta” eða þá að það hvetur mig til að draga mig í hlé vegna ástandsins í flokknum.

Þegar ég rita þetta þá sit ég með hnút í maganum enda ekki létt að hverfa á braut. Eflaust gæti ég unnið forsystusætið en hvað er unnið með því ef samstarfið verður óbærilegt? Er heiðarlegt að bjóða sig fram vitandi að allar líkur eru á að maður myndi hrökklast úr þingflokknum?“ segir Gunnar Bragi í færslunni sem sjá má hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×