Isco sá um Espanyol

Stefán Árni Pálsson skrifar
Isco fagnar hér marki sínu í kvöld.
Isco fagnar hér marki sínu í kvöld. vísir/getty
Real Madrid vann góðan sigur á Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór 2-0 fyrir heimamenn.

Real Madrid hefur ekki farið neitt sérstaklega vel af stað í deildinni og hefur liðið nú þegar tapað einum leik og gert tvö jafntefli.

Það var Isco sem gerði bæði mörk heimamanna í leiknum en liðið situr í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig, sjö stigum á eftir toppliði Barcelona.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira