Viðskipti erlent

Óánægðir eigendur iPhone 8 segja símana hafa klofnað í sundur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Nýjustu símar tæknirisans Apple, iPhone 8 og iPhone X, voru kynntir til sögunnar þann 12. september síðastliðinn.
Nýjustu símar tæknirisans Apple, iPhone 8 og iPhone X, voru kynntir til sögunnar þann 12. september síðastliðinn. Vísir/Getty
Tveir viðskiptavinir tæknirisans Apple, sem fjárfestu nýlega í iPhone 8, segja síma sína hafa klofnað fyrirvaralaust í sundur. Apple hefur málið til rannsóknar.

Annar viðskiptavinurinn sem um ræðir, tævönsk kona, segist hafa keypt eintak af iPhone 8 stuttu eftir að Apple setti símana á markað fyrr í þessum mánuði. Fimm dögum síðar hafi hún sett símann í hleðslu og hann hafi þá bólgnað upp og klofnað í sundur.

Hinn viðskiptavinurinn, japanskur karlmaður, segir síma sinn hafa verið klofinn þegar hann var keyptur. Líklegast þykir að rafhlöður í báðum símunum hafi „bólgnað upp“ og valdið téðum sprungum en viðskiptavinirnir deildu báðir myndum af iPhone 8-símum sínum á Twitter, eins og sjá má hér fyrir neðan.

Apple, framleiðandi símanna, hefur enn ekki tjáð sig um málið að öðru leyti en að fyrirtækið hefði annan símanna til rannsóknar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem tæknileg vandamál hafa skotið upp kollinum við útgáfu á nýjum vörum tæknirisa. Á síðasta ári stöðvaði helsti keppinautur Apple, Samsung, sölu á Galaxy Note 7 eftir að símarnir sprungu ítrekað við hleðslu.


Tengdar fréttir

Rafhlöðurnar ráða ekki við snjallsímana

Kristján Leósson, sérfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, ræddi við Reykjavík síðdegis í dag um rafhlöður í farsímum og hvað geri það að verkum að þær springi stundum fyrirvaralaust.

Í beinni: Apple kynnir iPhone X

Tim Cook, forstjóri Apple, mun kynna nýjar vörur frá bandaríska tæknirisanum á sérstakri kynningu í höfuðstöðvum Apple.

Von á nýjum græjum frá Apple 12. september

Bandaríski tæknirisinn Apple mun kynna nýjustu vörur sínar á sérstökum viðburði þann 12. september næstkomandi. Fastlega er gert ráð fyrir því að iPhone 8 muni líta dagsins ljós á kynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×