Fótbolti

Rúnar skoraði sigurmark Grasshoppers

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rúnar Már á ferðinni í leik með Grasshopper
Rúnar Már á ferðinni í leik með Grasshopper visir/epa
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði sigurmark Grasshoppers í 3-2 sigri gegn Sion á heimavelli í svissnesku deildinni en með sigrinum skaust Grasshopers upp úr fallsæti í bili.

Grasshoppers byrjaði tímabilið illa en eftir fjögur stig í síðustu tveimur leikjum komu leikmenn liðsins fullir sjálfstrausts inn í leikinn.

Gestirnir í Sion komust í tvígang yfir í fyrri hálfleik en Grasshoppers náði að svara fyrir í bæði skiptin. Fyrst var það Lucas Andersen og síðar Emil Bergstrom en Anderson átti eftir að koma aftur við sögu.

Lagði hann upp sigurmark Rúnars á 55. mínútu en þetta var annað mark Rúnars á tímabilinu. Næsti leikur liðsins er gegn Thun á útivelli en Grasshoppers getur haldið áfram að klífa töfluna þann daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×