Erlent

Heimurinn allur svari Norður-Kóreu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO. vísir/valli
Heimsbyggðin öll þarf að svara kjarnorkutilraunum Norður-Kóreu. Þetta sagði Jens Stolt­enberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) við BBC í gær. „Allri heimsbyggðinni stafar ógn af þeim og öll heimsbyggðin þarf því að svara þeim,“ sagði Norðmaðurinn og bætti því við að NATO væri að sjálfsögðu ekki undanskilið.

Stoltenberg neitaði þó að fullyrða að fimmta grein NATO-sáttmálans, er snýr að því að árás á eitt bandalagsríki teljist árás á öll, yrði virkjuð ef Norður-Kórea gerir árás á bandarísku eyjuna Gvam líkt og hótað hefur verið.

„Ég mun ekki setja fram einhverjar vangaveltur um hvort fimmta greinin eigi við í því tilfelli,“ sagði Stoltenberg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×