Tónlist

Bretar kunna að meta Jóa Pé, Chase og Króla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessir tveir höfðingjar hlusta á íslenskt rapp.
Þessir tveir höfðingjar hlusta á íslenskt rapp.
Lagið Ég vil það með Jóa Pé og Chase er sumarsmellur ársins í ár. Lagið hefur notið vinsælda síðustu mánuði og þekkja Íslendingar lagið vel.

Í lok ágúst birtu tveir ungir Bretar gangrýni á YouTube um lagið og virðast þeir nokkuð hrifnir. egar þessi frétt er skrifuð hefur verið horft á gagnrýnina yfir fjórtán þúsund sinnum.

Þeir halda úti YouTube-síðunni Kuzo og eru duglegir að horfa á íslensk rapplög og birta svokölluð „reaction“-myndbönd, þar sem þeir birta upptöku af viðbrögðum sínum við fyrsta áhorf.

Hér að neðan má sjá hvernig lagið fer í Bretann.

Þessir félagar hlustuðu einnig á lagið B.O.B.A með Jóa Pé og Króla sem hefur slegið rækilega í gegn undanfarna daga og er vinsælasta lag landsins um þessar mundir. 


Tengdar fréttir

Fyrsta lagið á íslensku rauk á toppinn

Lagið Ég vil það með Chase og Jóa Pé rauk upp á topp á Spotify listanum en þetta var fyrsta lagið sem Chase gerði á íslensku. Chase mun spila á Prikinu í kvöld þar sem hann ætlar m.a. að taka nýtt efni.

Litli frændi forsetans kveikir í internetinu

JóiPé og KRÓLI gáfu út lagið B.O.B.A. á mánudaginn og síðan þá hefur íslenska internetið vera í ljósum logum. Þeir ætla að gefa út plötu á morgun þannig að það má eiga von á fleiri sprengjum á næstunni frá þessum kornungu félögum sem eru bara rétt að byrja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×