Handbolti

Svæfingalæknir í jarðarför svo Karen var vakandi í aðgerðinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karen Knútsdóttir með eldhressum vinnufélögum sínum í dag.
Karen Knútsdóttir með eldhressum vinnufélögum sínum í dag. Vísir/Vilhelm
Landsliðskona Karen Knútsdóttir, sem varð fyrir því óláni að slíta hásin í sigurleik Fram gegn Stjörnunni, mætti til vinnu í bílaumboðið Öskju í morgun.

„Ég nenni ekki að vera heima, þótt ég megi vera heima. Það er skemmtilegra að vera á meðal fólks,“ segir Karen í samtali við Vísi.

Karen birti myndband af aðgerðinni á hásin sinni á Instagram. Eflaust finnst einhverjum óþægilegt að horfa á það enda hefur Instagram sett varnagla á birtingu myndbandsins sem sjá má hér að neðan. Karen segir hlutina hafa gerst hratt eftir að hún sleit hásin á miðvikudagskvöldið í síðustu viku.

Íslenska landsliðið og Fram mun sakna krafta leikstjórnandans næstu fimm mánuðina.Vísir/Vilhelm
„Ég hitti sérfræðing á föstudagsmorgun og hann sagði að ég gæti komið í aðgerð samdægurs,“ segir Karen. Það eina var að hún yrði að vera vakandi í aðgerðinni þar sem svæfingalæknir væri ekki laus.

„Svæfingalæknirinn var í jarðarför,“ segir Karen sem var staðdeyfð. Þannig segist hún ekki hafa fundið fyrir sársauka en þó fundið fyrir því að krukkað væri í fótinn og hásinin toguð til. Hjúkrunarfræðingurinn tók upp myndband fyrir Karen, sem hún svo birti vinum og vandamönnum á Instagram.

„Mig langaði ekki að sjá þetta á meðan ég var í aðgerð,“ segir Karen. Hún skellir upp úr þegar blaðamaður spyr hana hvort hún sé grjóthörð, hafi jafnvel ekki fellt tár síðan í leikskóla.

„Nei nei, ég fer oft að gráta. Þetta var bara einhvern veginn ekki vont. Það er meira „creepy“ að vera svæfð,“ segir Karen sem hefur verið heppin með meiðsli hingað til á ferlinum. Þetta er í fyrsta skipti sem hún gengst undir aðgerð vegna meiðsla.

Karen segir aðgerðina hafa gengið vel og sömuleiðis að sauma. Hún verður í gifsi út næstu viku en þá verður það fjarlægt. Hún reiknar með því að vera á hliðarlínunni í um fimm mánuði en ætlar svo að mæta til leiks í síðari hluta Olísdeildarinnar en Fram er einmitt spáð Íslandsmeistaratitlinum.

Ballið byrjar á morgun þegar Fram tekur á móti Gróttu. Karen ætlar að sjálfsögðu að styðja við bakið á sínum stelpum, á hækjunum.

Rétt er að minna á að Seinni bylgjan verður með upphitunarþátt sinn fyrir Olísdeild kvenna á Stöð 2 Sport í kvöld klukkan 21. Þátturinn er í opinni dagskrá og verður sömuleiðis sýndur hér á Vísi.

Hásinin komin í lag og allir ferskir

A post shared by Karen Knútsdóttir (@karenknuts) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×