Sport

Green Bay og Dallas byrja vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Elliott var magnaður í liði Dallas í gær.
Elliott var magnaður í liði Dallas í gær. Vísir/Getty
Tólf leikir fóru fram á annasömum degi í NFL-deildinni í gær þar sem stórlið Green Bay Packers og Dallas Cowboys byrjuðu á sigurbraut. Bæði lið lögðu sterka andstæðinga að velli í fyrstu umferðinni.

Dallas sendi skýr skilaboð með sigri á New York Giants, sem var án útherjans skrautlega Odell Beckham sem meiddist á undirbúningstímabilinu. Án Beckham skoraði Giants aðeins eitt vallarmark í leiknum og ekki eitt einasta snertimark.

Sjá einnig: Meistararnir flengdir í fjórða leikhluta

Ezekiel Elliott spilaði hins vegar í leiknum en þessi magnaði hlaupari í liði Dallas hafði verið dæmdur í sex leikja bann af NFL-deildinni fyrir heimilsofbeldi. Hann kærði hins vegar deildina fyrir bannið og fékk sínu í gegn. Elliot var því heimilt að spila á meðan að mál hans þvælist í dómskerfinu í Banda´rikjunum.

Elliot skilaði samtals 140 jördum í leiknum sem gerði það að verkum að Dallas stýrði ferðinni í leiknum. Leikstjórnandinn Dak Prescott gaf eina snertimarkssendingu í leiknum, á innherjann þaulreynda Jason Witten.

Russell Wilson.Vísir/Getty
Wilson hikstaði

Sókn Seattle-liðsins og leikstjórnandinn Russell Wilson hafa átt betri daga en gegn Green Bay Packers í gærkvöldi. Þrátt fyrir að hin magnaða vörn Seattle hafi staðið sína plikt - fellt Aaron Rodgers fjórum sinnum og með eitt inngrip - náði sóknin ekki að færa sér það í nyt.

Rodgers nýtti sér það og gaf snertimarkssendingu á Jordy Nelson í síðari hálfleik sem fór langt með að gera út um leikinn fyrir Green Bay. Lokatölur voru 17-9 en Seattle náði aldrei að ógna forystunni undir lok leiksins.

Wilson skilaði aðeins 158 sendingajördum í leiknum og eini maðurinn sem skoraði stig í leiknum var sparkarinn Blair Walsh.

Meðal annarra úrslita má nefna stórsigur LA Rams á Indianapolis Colts, 46-9, í fyrsta leik Sean McVay sem aðalþjálfara Rams. McVay er aðeins 31 árs gamall.

Andrew Luck er fjarri góðu gamni vegna meiðsla en Scott Tolzien fyllti í skarð hans í stöðu leikstjórnanda Colts. Tolzien var felldur fjórum sinnum og kostaði boltanum tvívegis í hendur andstæðinganna.

Næstu leikir sem sýndir verða beint á Stöð 2 Sport verða viðureignir New Orleans Saints og New England Patriots (kl. 17.00) og leikur Denver Broncos og Dallas Cowboys (kl. 20.20) á sunnudag.

Úrslit gærdagsins:

Buffalo - NY Jets 21-12

Chicago - Atlanta 17-23

Cincinnati - Baltimore 0-20

Cleveland - Pittsburgh 18-21

Detroit - Arizona 35-23

Houston - Jacksonville 7-29

Tennesse - Oakland 16-26

Washington - Philadelphia 17-30

LA Rams - Indianapolis 46-9

Green Bay - Seattle 17-9

San Francisco - Carolina 3-23

Dallas - NY Giants 19-3

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×