Íslenski boltinn

Haukar skipta um þjálfara eftir tímabilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jakob Leó Bjarnason og Halldór Jón Garðarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna, við undirskrift samningsins í dag.
Jakob Leó Bjarnason og Halldór Jón Garðarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna, við undirskrift samningsins í dag. mynd/haukar
Jakob Leó Bjarnason mun taka við þjálfun kvennaliðs Hauka í fótbolta eftir tímabilið.

Haukar eru þegar fallnir úr Pepsi-deild kvenna og munu því leika í 1. deild á næsta tímabili.

Kjartan Stefánsson og Jóhann Unnar Sigurðarson hafa þjálfað Hauka undanfarin tvö ár.

Í fréttatilkynningu frá Haukum kemur fram að árangur liðsins sé ekki ástæða þess að Kjartan og Jóhann láti af störfum.

Jakob, sem er fæddur árið 1985, hefur verið þjálfari 2. flokks kvenna hjá Fylki sem situr í 1. sæti A-deildar Íslandsmótsins. Áður starfaði Jakob sem íþróttastjóri og þjálfari hjá Þrótti Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×