Viðskipti innlent

Valdimar nýr prófessor við viðskiptadeild HR

Atli Ísleifsson skrifar
Valdimar Sigurðsson.
Valdimar Sigurðsson. Háskólinn í Reykjavík
Valdimar Sigurðsson hefur verið ráðinn í stöðu prófessors við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Í tilkynningu frá skólanum segir að Valdimar hafi kennt og stundað rannsóknir við viðskiptadeild HR frá árinu 2007, stýrt faglegri skipulagningu á kennslu markaðsmála og rannsókna við deildina og kennt á öllum stigum náms, sem og leiðbeint stjórnendum fyrirtækja.

„Hann var nýlega skipaður forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.

Rannsóknir Valdimars hafa beinst að neytendahegðun á netinu og í verslunarumhverfi. Hann hefur birt um 30 fræðigreinar í  fræðiritum og bókarköflum auk  fjölda greina í ráðstefnuritum. Hann situr í ritstjórn The Psychological Record, hefur ritrýnt fyrir mörg erlend vísindarit og fengið fjölda rannsóknarstyrkja frá samkeppnissjóðum og fyrirtækjum.

Valdimar lauk doktorsprófi í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði frá viðskiptadeild Cardiff háskóla í Bretlandi árið 2008. Árið 2005 lauk hann MSc í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti frá Háskóla Íslands og Aarhus University og BA gráðu í sálfræði, með viðskiptafræði sem aukagrein, frá HÍ árið 2003,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×