Lífið

Breytti algjörlega um taktík og setti upp gervirass

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta verður skemmtileg tilraun.
Þetta verður skemmtileg tilraun.
Svo virðist sem stórir rassar séu að slá rækilega í gegn á samfélagsmiðlum um allan heim.

Í fyrsta þætti Nerd City á YouTube er farið vel yfir ákveðin líkamleg tískufyrirbrigði undanfarna áratugi. Í dag eru stórir rassar inn og sést það vel á Kim Kardashian, Kylie Jenner og Nicki Minaj.

Instagram-stjörnurnar Jen Selter og Sommer Ray njóta gríðarlegrar vinsælda á miðlinum og eiga þær það sameiginlegt að vera með nokkuð stóra rassa.

En er nóg að vera bara með stóran rass til að fá mörg þúsund fylgjendur á Instagram?

Í YouTube-innslagi Nerd City er gerð ákveðin tilraun þar sem kona situr fyrir á myndum með gervirass. Fyrir tilraunina var hún aðeins með 84 fylgjendur á Instagram og spurning hvort tilraunin heppnist og konan auki fylgjendahóp sinn. 

Hér að neðan má sjá fyrsta þáttinn í þessari tilraun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×