Belgarnir drjúgir í öruggum sigri Man Utd | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Belgarnir í liði Manchester United gerðu gæfumuninn í 3-0 sigri á Basel í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Basel vann United þegar liðin mættust síðast í Meistaradeildinni fyrir sex árum en það var lítil hætta á að það endurtæki sig í kvöld. United var mun sterkari aðilinn í leiknum og sótti stíft.

Paul Pogba, sem var fyrirliði United í leiknum í kvöld, fór meiddur af velli á 19. mínútu. Í hans stað kom Marouane Fellaini og hann kom United yfir á 35. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Ashley Young.

Á 53. mínútu bætti Romelu Lukaku öðru marki við þegar hann skallaði fyrirgjöf Daleys Blind í netið.

Marcus Rashford skoraði svo þriðja mark United á 84. mínútu, sex mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður. Lokatölur 3-0, United í vil.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira