EasyJet semur við Dohop um flugbókunarvef 13. september 2017 15:56 "Þetta samstarf við easyJet boðar tímamót í sögu Dohop,” segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri félagsins vísir/pjetur
Breska flugfélagið easyJet kynnir í dag nýja vöru, Worldwide by easyJet, sem knúin er af tækni frá íslenska fyrirtækinu Dohop. Í fyrsta skipti í sögu easyJet býður félagið upp á þjónustu sem hjálpar viðskiptavinum að finna tengiflug. Annars vegar má finna tengingar milli tveggja easyJet fluga og hins vegar milli easyJet og samstarfsflugfélaga. Fram að þessu hefur easyJet aðeins selt eigin flug á sínum vef en brýtur með þessu blað í sögu sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu en þar segir að Worldwide by easyJet byrji í samstarfi við tvö flugfélög, Norwegian og WestJet. Í fyrstu verður aðeins boðið upp á tengingar í gegnum Gatwick flugvöll í London en hann er aðalflugvöllur easyJet. Það er GatwickConnects þjónustan, sem Gatwick setti á laggirnar árið 2015 í samstarfi við Dohop, sem veitir tengifarþegum þjónustu á vellinum. „Þetta samstarf við easyJet boðar tímamót í sögu Dohop,” segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri félagsins. „EasyJet er leiðandi lággjaldaflugfélag í Evrópu og það áttunda stærsta í heimi miðað við farþegafjölda. Okkar hugbúnaður hjálpar þeim að stíga stórt skref í átt að áframhaldandi vexti og styrkja stöðu sína sem brautryðjendur meðal flugfélaga í heiminum,“ er haft eftir honum í tilkynningu. Dohop, sem recur ferðaleitarvefinn dohop.is, hefur frá stofnun félagsins árið 2004 einbeitt sér að því að finna tengingar milli lággjaldaflugfélaga og hefðbundinna flugfélaga.
Mest lesið „Það tók mig fimm mánuði að byrja að tala íslensku“ Atvinnulíf Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Viðskipti innlent FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Neytendur Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Viðskipti innlent Guðbjörg orðin pítsudrottning Viðskipti innlent Eyjólfur vill halda formennsku áfram Viðskipti innlent Tekur við stöðu forstjóra Securitas Viðskipti innlent Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða Neytendur Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Samstarf Fleiri fréttir Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Fjögurra stjörnu hótel opni við Skógarböðin Hákon nýr öryggisstjóri Arion Fyrrverandi forstjóri Bláfugls stýrir nýju sviði hjá Play Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Segir yfirlýsingu bankaráðsins „auma“ Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM Munu skoða að losna strax við TM Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning Öllu bankaráði Landsbankans skipt út Stefna Eimskip: Tjón Samskipa gæti hlaupið á milljörðum króna Sjá meira