Körfubolti

Tryggvi þreytti frumraun sína með Valencia í kvöld | Ægir með stórleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með Íslandi á EM.
Tryggvi Snær í leik með Íslandi á EM. vísir/ernir
Tryggvi Snær Hlinason lék sinn fyrsta leik fyrir Valencia þegar spænsku meistararnir unnu sjö stiga sigur, 78-71, á Castelló í góðgerðaleik í kvöld.

Tryggvi spilaði í tæpar 10 mínútur, skoraði tvö stig og tók þrjú fráköst. Bæði stigin komu af vítalínunni.

Félagi Tryggva í íslenska landsliðinu, Ægir Þór Steinarsson, átti stórleik fyrir Castelló.

Ægir skoraði 12 stig, tók sex fráköst og gaf átta stoðsendingar. Hann hitti úr fimm af átta skotum sínum utan af velli.

Castelló leikur í næstefstu deild á Spáni en Valencia er eins og áður sagði ríkjandi Spánarmeistari.

Ægir átti dúndurleik.vísir/ernir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×