Innlent

Verja á 25 milljónum í æskuslóðir Jóns forseta

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Hrafnseyri við Arnarfjörð þar sem Jón Sigurðsson fæddist 17. júní 1811.
Fréttablaðið/Jón Sigurður
Hrafnseyri við Arnarfjörð þar sem Jón Sigurðsson fæddist 17. júní 1811. Fréttablaðið/Jón Sigurður
Gert er ráð fyrir að verja 25 milljónum króna í endurbætur og viðhald á húsnæði, eignum og jörð á Hrafnseyri við Arnarfjörð þar sem Jón Sigurðsson, oft nefndur Jón forseti, er fæddur og uppalinn. Í dag er þar menningarsetur og safn til heiðurs Jóni en samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2018 hefur forsætisráðuneytið eyrnamerkt áðurnefnda upphæð til endurbóta og viðhalds þar.

Málefni Hrafnseyrar heyrðu áður undir mennta- og menningarmálaráðuneytið en heyra nú undir forsætisráðuneytið í kjölfar forsetaúrskurðar í janúar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta.

Fleira forsetatengt er að finna í fjárlagafrumvarpinu hjá forsætisráðuneytinu. Þannig kemur fram að gert sé ráð fyrir 30 milljóna króna framlagi til að mæta útgjöldum vegna framkvæmda við „heimreið og heimasvæði á Bessastöðum“. Viðhaldsþörfin á forsetabústaðnum á Bessastöðum hefur verið nokkur á umliðnum árum en í fyrra voru veittar 7 milljónir króna í að uppfæra öryggismyndavélar á svæðinu. Árið 2016 voru veittar 22,5 milljónir í að sinna uppsafnaðri viðhaldsþörf á Bessastöðum eins og heilmálun, viðgerðum á gluggum og endurnýjun á gleri, viðgerð og endurnýjun gólfefna og viðhaldi á öryggis- og húskerfi og fjarskiptalögnum Bessastaða.

Enn á ný er gert ráð fyrir að forsætisráðuneytið verji umtalsverðum fjármunum í að styrkja öryggismál í Stjórnarráðinu. Er það gert í samræmi við tillögur Ríkislögreglustjóra en embættið veitir þó engar upplýsingar um í hverju þær tillögur felast. Árið 2016 var 15 milljónum veitt í verkefnið en í fjárlagafrumvarpinu 2018 er gert ráð fyrir 17,5 milljónum í að styrkja öryggi Stjórnarráðshússins.

Þó að þegar hafi verið varið 15 milljónum í öryggismál árið 2016 þótti stjórnarráðið engu að síður ekki uppfylla nauðsynlegar öryggiskröfur þegar þjóðaröryggisráð kom saman í júní síðastliðnum. Þá fundaði ráðið á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en meðal þeirra sem sæti eiga í ráðinu er ríkislögreglustjóri.


Tengdar fréttir

Prófsteinn á stjórnarsamstarfið

Fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar verða lögð fram á fimmtudag. Útlit er fyrir átakavetur á Alþingi. Fjármál ríkisins verða allsráðandi út árið en seinnipart vetrar gætu sveitarstjórnarkosningarnar litað þingstörf.

Líklegt að fjárlagafrumvarp taki nokkrum breytingum á Alþingi

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa til að mynda fullyrt að ekki sé verið að auka framlög til uppbyggingar Landsspítalans umfram launahækkanir og til nýbygginga og enn séu skerðingar í elli- og örorkulífeyriskerfinu vegna tenginga við tekjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×