Erlent

Bretar muni sjá eftir Brexit

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB. Nordicphotos/AFP
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB. Nordicphotos/AFP
Bretar munu sjá eftir því að yfirgefa Evrópusambandið. Þetta sagði Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, á Evrópuþinginu í gær.

Sagði Juncker jafnframt að Brexit yrði sorgleg stund fyrir sambandið en að ESB myndi halda ótrautt áfram.

„Brexit er ekki framtíð Evrópu. Það mun ekki marka endalokin,“ sagði forseti framkvæmdastjórnarinnar.

Um var að ræða stefnuræðu framkvæmdastjórnarinnar þegar Evrópuþingið kom saman í Strassborg í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×