Fótbolti

Hallbera: Byrjum með hreint blað

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hallbera og stöllur hennar í íslenska landsliðinu taka á móti Færeyingum á mánudaginn.
Hallbera og stöllur hennar í íslenska landsliðinu taka á móti Færeyingum á mánudaginn. vísir/ernir
„Það er alltaf gaman að koma heim og spila á Laugardalsvelli. Við erum að byrja nýja keppni og byrjum með hreint blað,“ sagði Hallbera Guðný Gísladóttir í samtali við Vísi fyrir æfingu íslenska landsliðsins í gær.

Íslenska liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM á mánudaginn. Þetta er fyrsti leikur stelpnanna okkar eftir vonbrigðin á EM í sumar.

„Þetta er ekki auðveldur riðill þótt hann líti út fyrir að vera það. Við þurfum að spila mjög vel til að ná 2. sætinu. Auðvitað erum Þjóðverjarnir líklegir til að taka 1. sætið. Við þurfum að klára svona leiki eins og á mánudaginn. Það er klárt mál,“ sagði Hallbera.

Sem kunnugt er vann Ísland ekki leik á EM í Hollandi. Hallbera segir að það hafi tekið tíma að hrista vonbrigðin af sér.

„Það tók smá stund. En það hjálpaði að fara aftur til félagsliðsins og byrja að spila þar. Þá jafnaði maður sig á þessu. Við erum búnar að loka þessum kafla og ég held að allir hlakki til að byrja á nýju móti,“ sagði Hallbera.

Skagakonan leikur með Djurgården sem situr í 4. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Hún segir að staða liðsins sé nokkuð góð.

„Það hefur ekkert gengið alltof vel undanfarin ár svo 4. sætið er flott eins og er. Við höfum verið á góðu róli að undanförnu og vonandi heldur það áfram,“ sagði Hallbera sem kveðst ánægð með dvölina í Svíþjóð.

En vill hún vera áfram hjá Djurgården, eða halda áfram í atvinnumennsku.

„Ég þarf að skoða hvað ég geri. Ég þarf bara að fara að huga að framtíðinni, hvort ég fari að vinna eða ekki. En það er frábært að geta einbeitt sér að fótboltanum. Ég skoða málin eftir tímabilið,“ sagði Hallbera að endingu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×