Innlent

Með 30 prósent sjón eftir tappaslys

Samúel Karl Ólason skrifar
Á myndinni til vinstri má sjá hvernig augasteinn Þóru dregst ekki saman.
Á myndinni til vinstri má sjá hvernig augasteinn Þóru dregst ekki saman.
Þóra Björg Ingimundardóttir fékk töluverða áverka á auga í síðasta mánuði þegar tappi af Floridana ávaxtasafa skaust í auga hennar með miklum krafti. Eftir slysið var varan innkölluð og Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sendi frá sér tilkynningu um slysahættu vegna plastflasknanna. Síðan þá hefur Þóra fengið smá sjón í augað aftur og reiknast sjón hennar nú hátt í 30 prósent.



Hún fór nýverið til læknis sem varð var við skemmdir á sjónhimnu Þóru sem er átján ára gömul. Augasteinn hennar er verulega skemmdur. Hún þarf því að fara í aðgerð til að skipta um hann.

Ekki víst að hún fái fulla sjón aftur

„Það er svolítið mikið vesen út af því að gerviaugasteinar duga ekki rosa lengi. Ég mun því örugglega þurfa að fara nokkrum sínum í þessa aðgerð í framtíðinni,“ segir Þóra í samtali við Vísi.

Læknarnir vildu ekki segja til um hvort að Þóra fengi fulla sjón aftur þar sem sjónhimnan hafi orðið fyrir skemmdum. Það skapi mikla óvissu. Bólgan sem Þóra fékk eftir slysið er að mestu farin, en eftir eru ör í auga hennar. Tappinn fór með slíkum krafti í auga hennar að hann gerði skurð á augnlokið og náði inn á augað sjálft.

Augasteinn hennar dregst þó ekki lengur saman og fær hún mikinn hausverk af því að vera í mikilli birtu. Því ber hún lepp yfir auganu til að hlífa sér frá birtunni.

Þóra var ekki sú eina sem lenti í svona slysi, en Svavar Þór Georgsson fékk einnig tappa í augað á svipuðum tíma.

Sjá einnig: Tveir með alvarlega áverka á auga eftir Floridana ávaxtasafa í plastflösku: „Þetta er grafalvarlegt mál sem þarf að stoppa“



Þóra segir þó að fólk hafi sent sig í samband við sig sem hafi svipaðar sögur að segja og þær nái allt að fimm ár aftur í tímann. Í byrjun þessa mánaðar birti Hrafn Garðarsson myndband af sér þar sem hann opnaði sambærilega flösku. Þar mátti sjá tappann skjótast af með miklum krafti.

Þetta hefði dældað bíl, krafturinn var slíkur. Þannig að ég get rétt ímyndað mér hvernig er að fá þetta í andlitið,“ sagði Hrafn.
 



Von á niðurstöðu rannsóknar

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, sagði í lok ágúst að málið væri til rannsóknar hjá fyrirtækinu. Öllum steinum yrði velt, samband yrði haft við erlenda umbúðaframleiðendur og vélbúnaður fyrirtækisins skoðaður.

„Það er enn verið að vinna hörðum höndum í þessu,“ segir Andri nú í samtali við Vísi. „Niðurstaðan er væntanleg á næstu dögum.“

Ölgerðin hefur verið í samskiptum við móður Þóru og Andri segir að fyrirtækið ætli að vera í samráði við þær um framhaldið.


Tengdar fréttir

Neytendur hvattir til að farga Floridana í plastflöskum

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. hefur tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Floridana ávaxtasafasafa í plastflöskum þar sem dæmi eru um að yfirþrýstingur hafi myndast í flöskunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×