Golf

Stórhagnaðist á að leik var aflýst í gær

Park á Evian-mótinu í morgun.
Park á Evian-mótinu í morgun. Vísir/Getty
Sung Hyun Park leiðir nú Evian Championship-mótið í Frakklandi, síðasta stórmót ársins í kvennagolfinu en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er á meðal þátttakenda á mótinu.

Keppni var aflýst í gær vegna veðurs en Ólafía Þórunn var þá ekki farin af stað. Hún á rástíma í dag klukkan 11.09 og verður fylgst náið með gangi mála á Vísi í dag.

En fjölmargir kylfingar voru byrjaðir að spila í gær við krefjandi aðstæður áður en ákveðið var að hætta leik vegna mikilla vinda og rigningar. Ein þeirra er Park sem lenti í miklum hremmingum og var á sex höggum yfir pari þegar hætt var að spila.

Meðal annars lék hún elleftu holu á níu höggum en það er par fjögur hola. Park hóf leik á tíundu holu, rétt eins og Ólafía gerir í dag.

Mótshaldarar ákváðu hins vegar í gær að aflýsa fyrsta hringnum alfarið og byrja mótið upp á nýtt í dag. Það þýðir að allir kylfingarnir sem voru byrjaðir að spila í gær byrjuðu á núllpunkti í dag.

Það kom sér afar vel fyrir Park sem hefur spilað eins og engill í dag og er í forystu eftir níu holur á sex höggum undir pari. Hún fékk fjóra fugla og einn örn á fyrstu níu - þar af par á elleftu holu sem reyndist henni svor erfið í gær.

Bein útsending er hafin frá mótinu á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×