Golf

Sjáðu Ólafíu ná þremur fuglum í röð | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er núna að spila fyrsta hringinn á Evian-meistaramótinu, síðasta risamóti ársins í golfi.

Þegar þetta er skrifað er Ólafía í 20. sæti á einu höggi undir pari.

Þorsteinn Hallgrímsson og Friðrik Þór Halldórsson eru staddir úti í Evian í Frakklandi og fylgjast grannt með gangi mála hjá Ólafíu.

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá öll högg Ólafíu á fyrstu sex holunum. Hún byrjaði á því að ná skolla, fékk svo tvö pör áður en hún náði þremur fuglum í röð.

Með því að smella hér má fylgjast með beinni lýsingu frá Evian-meistaramótinu.



Bein útsending frá Evian-meistaramótinu stendur nú yfir á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×