Menning

Lét innsæið ráða öllum skrefum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þegar Halldór var í heimspeki í Háskólanum fyrir fimmtán árum kveðst hann hafa fengið áhuga fyrir málspekinni.
Þegar Halldór var í heimspeki í Háskólanum fyrir fimmtán árum kveðst hann hafa fengið áhuga fyrir málspekinni. Vísir/Eyþór
Sýningin fjallar í raun um það ferli að vakna og fá vilja til að gera eitthvað – hjá mér er það að fást við myndlist og hjá flestum öðrum eitthvað allt annað,“ segir Halldór Ragnarsson myndlistarmaður um inntak sýningarinnar Svona sirka svona sem hann opnar í dag klukkan fjögur að Skúlagötu 32.

Gjörningurinn að vinna að sýningunni sem heild og af tilfinningu er hvatinn að henni, að sögn Halldórs sem sjálfur kveðst hafa spurt sig í vinnuferlinu hvort sú hugmynd hefði nógu mikið gildi. „Kannski mun áhorfandinn spyrja sig eitthvað svipað líka. En ég ræð engu um það. Verkin eru eins og börnin manns, maður veit aldrei hvernig þeim verður tekið en vonar það besta.“



Sýningin Svona sirka svona er framhald sýningar sem Halldór var með í Gróttu í desember. Hún hét Útskýringar. „Þá var ég að útskýra það sem var á fletinum. Þessi sýning er í hina áttina, en ég er samt dálítið að útskýra það sem gerist þegar maður mætir í vinnu. Það er einmanalegt starf að vera myndlistarmaður, alltaf að leita að svörum þó þau séu ekki endilega við flóknum spurningum eins og um líf eftir dauðann.“





sdfa
Öll verkin eru með texta. Halldór segir þau tengjast og vera á vissan máta að vitna hvert í annað. „Ég er að leika mér með tungumálið. Þegar ég byrjaði ákvað ég að hafa ferlið opið í báða enda og láta innsæið ráða öllum skrefum, ekkert ósvipað og rithöfundur lætur eitt leiða af öðru í söguþræði sínum,“ segir hann og heldur áfram:

„Þó eru þetta myndverk, fyrst og fremst – samkrull af tungumálaheimspeki og persónulegum þáttum sem geta átt við hvern sem er. Þetta er sirka svona. Það er erfitt að útskýra eitthvað þegar maður vill ekki útskýra það.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×