Enski boltinn

Nistelrooy: Framför Rashford ótrúleg

Dagur Lárusson skrifar
Nistelrooy á Old Trafford um daginn
Nistelrooy á Old Trafford um daginn Vísir/getty
Ruud van Nistelrooy, fyrrum leikmaður Manchester United og Real Madrid, segir að framför Marcus Rashford hafi verið ótrúleg.

Rashford braust inn í lið United aðeins 17 ára gamall og hefur síðan farið mikinn fyrir félagið og skoraði mikið af mörkum og segist Nistelrooy muna eftir því hvenær hann sá ungstirnið fyrst spila.

„Ég sá hann fyrst spila í unglingaliðsleik fyrir félagið gegn PSV fyrir tveimur árum og þá fannst mér hann frábær,“ sagði Nistelrooy

 

„Framförin hefur verið hreint út sagt ótrúleg. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að aðeins hálfu ári eftir að ég sá hann fyrst væri hann búinn að brjótast inn í aðalliðið.“

„En þetta segir okkur hvernig karakter hann er, hann er fljótur að læra og það er frábær kostur að hafa.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×