Enski boltinn

David Luiz missir af stórleik gegn Manchester City

David Luiz fær að líta rauða spjaldið í dag.
David Luiz fær að líta rauða spjaldið í dag. Vísir/getty
David Luiz, varnarmaður Chelsea, fékk að líta rauða spjaldið gegn Arsenal í dag eftir ljóta tæklingu á Sead Kolasinac og mun því fara í þriggja leikja bann.

David Luiz mun því missa af leik liðsins gegn Nottingham Forrest í deildarbikarnum, næsta deildarleik gegn Stoke og síðan stórleiknum gegn Manchester City í deildinni þann 30. september.

Þetta verður að teljast mikill missir fyrir þá bláklæddu þar sem að David Luiz hefur verið algjör lykilmaður í vörn Chelsea síðastliðna árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×