Lífið

Channing Tatum fór á kostum sem Elsa í Frozen

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tatum er algjör snillingur í þessum málum.
Tatum er algjör snillingur í þessum málum.
Halle Berry og Channing Tatum leika saman í kvikmyndinni Kingsman: The Golden Circle og eru þau bæði núna í kynningarstarfi fyrir kvikmyndina en það felur oftast í sér að mæta í spjallþætti og ræða myndina.

Tatum lét til að mynda Halle Berry drekka slatta af viskíi. Það fór heldur illa í leikkonuna og fékk hún því Ellen Degeneress með sér í lið til að ná fram hefndum.

Tatum þurfti því að klæða sig eins og Elsa í Frozen og taka það sem margir þekkja sem „Lyp-sync“ en leikarinn er algjör sérfræðingur á því sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×