Erlent

Segja þvinganir til einskis

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Kim Jong-un einræðisherra er ósáttur.
Kim Jong-un einræðisherra er ósáttur. vísir/afp
Utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu gaf út yfirlýsingu í gær þar sem viðskiptaþvinganir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í garð einræðisríkisins eru fordæmdar. „Þær eru grimmilegar, ósiðlegar og ómannúðlegar.“ Þá segir að þvinganirnar séu til einskis. Frekari þvinganir muni leiða til þess að Norður-Kórea setji meiri kraft í kjarnorkuáætlun sína, en vegna hennar var þvingununum komið á.

Yfirlýsingin er afdráttarlaus. Fram kemur meðal annars að tilgangur þvingananna hafi verið að „útrýma“ norðurkóresku þjóðinni og ríkisstjórninni. Þvinganirnar ganga út á að hamla olíuflutningum til og frá ríkinu og að banna viðskipti með norðurkóreskar textílvörur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×