Fótbolti

Sjáðu mörkin átta sem Ísland skoraði gegn Færeyjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eftir markaþurrð það sem af er ári bauð íslenska kvennalandsliðið í fótbolta til markaveislu þegar Færeyjar komu í heimsókn á Laugardalsvöll í gær.

Íslensku stelpurnar voru miklu sterkari aðilinn og unnu 8-0 sigur.

Elín Metta Jensen, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir skoruðu allar tvö mörk og þær Sara Björk Gunnarsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir sitt markið hvor.

Leikurinn í gær var sá fyrsti hjá íslenska liðinu í undankeppni HM 2019. Næstu leikir þess eru gegn Þýskalandi og Tékklandi í október.

Mörkin úr leiknum gegn Færeyjum má sjá í spilaranum hér að ofan.

vísir/eyþór
vísir/eyþór
vísir/eyþór
vísir/eyþór

Tengdar fréttir

Sara Björk: Þurfum að vera gráðugari

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var að vonum ánægð með frammistöðu liðsins í 8-0 sigri á Færeyjum í undankeppni Heimsmeistaramótsins í Frakklandi 2019.

Markastíflan brast með látum

Ísland hóf undankeppni HM 2019 með risasigri á slöku liði Færeyja. Sigurinn hefði getað orðið stærri. Það reynir meira á liðið í næstu tveimur leikjum.

Elín Metta: Vil alltaf meira

Elín Metta Jensen fékk sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins í dag þegar liðið tók á móti Færeyjum á Laugardalsvelli í undankeppni Heimsmeistarmótsins 2019. Nýtti hún tækifærið vel, var komin með tvö mörk og stoðsendingu eftir hálftíma leik.

Freyr: Er alveg sáttur með 8-0

Freyr Alexandersson var sáttur með frammistöðu Íslands í kvöld, en íslensku stelpurnar unnu þær færeysku 8-0 á Laugardalsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×