Innlent

Frítekjumark ellilífeyrisþega fátæktargildra

Erla Björg Gunnarsdóttir og Hulda Hólmkelsdóttir skrifa
Ellert B. Schram formaður Félags eldri borgara í Reykjavík.
Ellert B. Schram formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Vísir/Eyþór
Formaður Félags eldri borgara í Reykjavík segir stjórnvöld setja eldra fólk í fátæktargildru með 25 prósent frítekjumarki á tekjum. Áætlað sé að hækka markið í þrepum á næstu árum án þess að hafin sé formleg vinna í þeim efnum.

Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Margréti Helgu Jóhannsdóttur leikkonu sem lék í þáttaröðinni Föngum á síðasta ári. Hún segist þar meðal annars ekki ætla að taka að sér hlutverk í annari þáttaröð af Föngum nema lífeyriskerfið á landinu breytist.

Útskýrir hún að hún megi ekki vinna nema fyrir 25.000 krónur á mánuði án þess að lífeyrisgreiðslur hennar séu skertar, krónu á móti krónu. Harmar hún að eldri borgarar séu ekki hvattir til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu og bendir á að hún borgi að sjálfsögðu tekjuskatt af launum sínum.

Hækki á fimm árum

25.000 króna frítekjumark var sett á 1. janúar síðastliðinn. Ef fólk fær yfir fimm hundruð þúsund krónur á mánuði er grunnlífeyrir lagður niður sem getur mest verið 280 þúsund. Ellert B Schram formaður Félags eldri borgara segist ekki skilja forsendurnar fyrir þessari breytingu. 

„Það er verið að koma í veg fyrir að fólk fái of mikið úr kerfinu. Mér sýnist að það sé einhver forsenda en ég ætla ekki að taka upp hanskann fyrir stjórnvöld vegna frítekjumarks. Sem þeir hafa sett inn í lögin,“ segir Ellert B Schram sem hefur í krafti embættis síns fengið viðtöl við fjármála- heilbrigðis og velferðarráðherra vegna málsins. 

„Þá var þetta mál efst á bauti. Svörin sem ég fékk var að ríkið voru þau að ríkið væri búið að setja fjármálaáætlun af stað þar sem gert er ráð fyrir að þessu verði breytt hægt og sígandi á fimm árum upp í 100.000 krónur. En þeir geta engu breytt því þeir halda sig við þessa áætlun þótt þeim sé ljóst að þetta er bara fátæktargildra.“


Tengdar fréttir

Markvisst niðurbrot á fólki

Margrét Helga Jóhannsdóttir á að baki glæstan feril í leikhúsi og kvikmyndum. Hún segist hafa verið hrakfallabálkur alla tíð, að henni hafi tæpast verið ætlað verða leikkona og nú sé svo komið að henni sé meinað að vinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×