Innlent

Krókódíll hreiðraði um sig í húsi á flóðasvæðunum

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Krókódílaárásir geta verið lífshættulegar.
Krókódílaárásir geta verið lífshættulegar. mynd úr safni
Íbúa í nágrenni Houston brá í brún er hann sneri til síns heima í gær en krókódíll hafði gert sig heimakominn í húsi hans. Maðurinn hafði flúið heimili sitt vegna fellibyljarins Harveys í síðustu viku. Washington Post greinir frá þessu.

Að sögn lögregluyfirvalda á svæðinu barst tilkynning um hinn óboðna gest í gær og voru lögregluþjónar sendir á vettvang í kjölfarið. Töluvert regnvatn hafði flætt inn á heimilið sem greiddi leið krókódílsins.

Á mynd, sem lögregluyfirvöld birtu á Facebook-síðu sinni, má sjá krókódílinn gægjast undan borðstofuborði. Að sögn yfirvalda verður krókódíllinn færður í sín náttúrulegu heimkynni von bráðar.

Talsvert hefur borið á tilkynningum um krókódíla í Texas-ríki en samkvæmt óstaðfestum orðrómi sluppu hundruð krókódíla af búgarði í námunda við Houston í flóðunum. 

Yfirvöld vara fólk við að stugga við dýrunum enda getur krókódílaárás verið lífshættuleg. Krókódílar eru fótfráir á landi og því erfitt að hlaupa þá uppi. Rétt viðbrögð væru að hafa sig hægt, hörfa rólega og láta vita. 

Krókódílar eru ekki einu skepnurnar sem hafa angrað íbúa á svæðinu en stærðarinnar „flekar“ af eldmaurum hafa sést fljóta á vatnselgnum í kjölfar lægðarinnar. Eldmaurar eru skaðræðisdýr sem þekktir eru fyrir árásargirni sína í garð mannfólks. Bit þeirra eru sögð afar sársaukafull og geta jafnvel kallað fram lífshættuleg ofnæmisviðbrögð, í örfáum tilfellum.

Á meðfylgjandi mynd má einnig sjá beltisdýr sem hefur tekið sér far með árabáti.  

Hjálparstarf fer nú fram í Texas-ríki en fellibylurinn hefur þegar kostað 47 manns lífið. Eignatjón hleypur á tugum milljarða en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur biðlað til Bandaríkjaþings um að senda 7,8 milljarða bandaríkjadala í neyðaraðstoð.


Tengdar fréttir

Trump heimsækir hamfarasvæði á ný

Forsetinn mun taka stöðuna á hjálparstarfi bæði í Houston í Texas-ríki, sem fór einna verst út úr flóðum í kjölfar Harveys, og Louisiana-ríki.

7,8 milljarðar dala í neyðaraðstoð vegna Harvey

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent Bandaríkjaþingi beiðni um 7,8 milljarða bandaríkjadala í neyðaraðstoð svo hægt sé að hefja uppbyggingu í kjölfar eyðileggingar eftir fellibylinn Harvey í Texas og Louisiana

Úr öskunni í eldmaurinn

Þúsundir árásargjarnra eldmaura fljóta saman á vatnselgnum sem lagt hefur heilu borgarhlutana í Texas í rúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×