Erlent

Faðmaði börn og hyllti neyðaraðstoð í Houston

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þetta er önnur heimsókn forsetahjónanna til Houston eftir að fellibylurinn gekk þar á land.
Þetta er önnur heimsókn forsetahjónanna til Houston eftir að fellibylurinn gekk þar á land. Vísir/afp
Donald Trump Bandaríkjaforseti hyllti neyðaraðstoð, sem unnið hefur verið að í kjölfar fellibylsins Harveys, í heimsókn sinni til Houston í Texas-ríki í dag. Hann, ásamt konu sinni Melaniu, heimsótti neyðarskýli og ræddi við fórnarlömb hamfaranna sem hafast þar við. BBC greinir frá.

„Það er að rætast úr hlutunum,“ sagði Trump um neyðaraðstoðina er hann og eiginkona hans, Melania Trump, heimsóttu fórnarlömb Harveys og sjálfboðaliða í neyðarskýli í Houston nú í dag. Þetta er önnur heimsókn forsetahjónanna til Houston eftir að fellibylurinn gekk þar á land. Þau munu einnig koma við í Louisiana-ríki sem varð illa úti í hamförunum.

Sjá einnig: Trump heimsækir hamfarasvæði á ný

„Eins erfitt og þetta var þá hefur þetta verið dásamlegt,“ bætti Trump við.

Trump-hjónin komu ekki við á hamfarasvæðunum sjálfum þegar þau heimsóttu Houston á þriðjudag. Forsetinn var í kjölfarið m.a. gagnrýndur fyrir að hitta engin fórnarlömb flóðanna miklu, sem valdið hafa mikilli eyðileggingu í borginni.

Forsetahjónin létu vel að börnum í neyðarskýlinu í Houston í dag.Vísir/AFP
Í dag komu hjónin því við í neyðarskýli, þar sem fórnarlömb Harveys hafast við, og útdeildu þar mat og sátu fyrir á myndum með þeim sem þess óskuðu. Þá minntist forsetinn sérstaklega á hinn mikla kærleika sem ríkir meðal fólks á hamfarasvæðunum.

Þá hefur Trump lýst því yfir að morgundagurinn verði „Dagur bænahalds“ í öllum ríkjum Bandaríkjanna, sérstaklega í nafni fórnarlamba Harveys.

Í gær sendi Trump Bandaríkjaþingi beiðni um 14,5 milljarða Bandaríkjadala í neyðaraðstoð svo hægt sé að hefja uppbyggingu í kjölfar eyðileggingarinnar í Texas og Louisiana. 7,8 milljarðar af þeirri upphæð, eða um 822 milljarðar íslenskra króna, verða leystir út til hjálparstarfs á næstu dögum en restin í lok mánaðar.

Talið er að minnst 47 manns séu látnir vegna Harveys og þá dvelja 43 þúsund manns í neyðarskýlum. Einhverjir hafa fengið að snúa aftur til síns heima en enn eru mikil flóð á nokkrum svæðum.


Tengdar fréttir

Grannt fylgst með Irmu

Sérfræðingar óttast að fellibylurinn Irma muni ná sama vindhraða og Harvey.

Trump heimsækir hamfarasvæði á ný

Forsetinn mun taka stöðuna á hjálparstarfi bæði í Houston í Texas-ríki, sem fór einna verst út úr flóðum í kjölfar Harveys, og Louisiana-ríki.

Efnaverksmiðja spýr eitri eftir Harvey

Regnvatn olli bilunum í efnaverksmiðju í Houston. Yfirmaður hamfaravarna segir útblástur frá verksmiðjunni afar hættulegan. Spreng­ingar heyrðust í nágrenni verksmiðjunnar í gær. Tala látinna heldur áfram að hækka í Texas. Stormurinn stefnir nú í norðausturátt.

7,8 milljarðar dala í neyðaraðstoð vegna Harvey

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent Bandaríkjaþingi beiðni um 7,8 milljarða bandaríkjadala í neyðaraðstoð svo hægt sé að hefja uppbyggingu í kjölfar eyðileggingar eftir fellibylinn Harvey í Texas og Louisiana




Fleiri fréttir

Sjá meira


×