Viðskipti innlent

Gísli Kr. nýr verkefna- og vörustjóri skýjalausna hjá Advania

Atli Ísleifsson skrifar
Gísli Kr.
Gísli Kr. advania
Gísli Kr. hefur verið ráðinn verkefna- og vörustjóri skýjalausna hjá Advania.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að í starfinu felist umsjón með vöruþróun sem miði að því að gera vörur og þjónustur fyrirtækisins aðgengilegar í Markaðstorgi Advania.

„Gísli er einn stofnenda skýjatæknifyrirtækisins Greenqloud sem nýverið var keypt af NetApp. Hann starfaði síðast sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs félagsins en hefur einnig starfað sem upplýsingatækni- og viðskiptaþróunarráðgjafi. Hann er kvæntur Bryndísi Gyðu Michelsen, laganema, og eiga þau saman einn son en Gísli á einn son úr fyrra sambandi,“ segir í tilkynningunni.

Gísli kveðst gríðarlega ánægður að vera kominn til liðs við Advania og spenntur að takast á við spennandi áskoranir. „Það eru gríðarlega spennandi tímar framundan og megin áhersla okkar er að bæta þjónustuferla enn frekar og veita viðskiptavinum tól til að besta sinn UT rekstur,” er haft eftir Gísla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×