Innlent

Sjáðu kraftinn þegar Floridana-flaska er opnuð: „Þetta hefði dældað bíl“

Birgir Olgeirsson skrifar
Hrafn Garðarsson sést hér munda Floridana-flöskuna.
Hrafn Garðarsson sést hér munda Floridana-flöskuna. Hrafn Garðarsson.
„Þetta hefði dældað bíl, krafturinn var slíkur,“ segir Hrafn Garðarsson í samtali við Vísi en hann birti í dag myndband á Facebook þar sem hann sést opna flösku sem inniheldur Floridana-ávaxtasafa frá Ölgerðinni. „Þannig að ég get rétt ímyndað mér hvernig er að fá þetta í andlitið,“ segir Hrafn.

Matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem brýnt var fyrir neytendum að farga Floridana-flöskum vegna slysahættu.

Eins og kom fram á Vísi á fimmtudag eru tveir með alvarlega áverka á auga eftir að hafa opnað Floridana-flösku með þeim afleiðingum að tappinn skaust í auga þeirra.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur áréttaði í tilkynningu sinni að upp hafa komið alvarleg tilvik þar sem umbúðir springa annað hvort í heild sinni eða tappi skýst af og sé því um öryggismál að ræða fyrir neytendur.

Hrafn segir flöskuna sem um ræðir hafa verið í bílnum hans í um tvær vikur. Sex ára sonur hans hafði fengið hana frá ömmu sinni og hafði hún verið geymd í sætisbaki fyrir framan bílstól sem drengurinn situr í.

„Eftir að hafa lesið fréttir af þessu máli fór maður að rifja upp hvar flaskan væri. Ég ákvað því að prufa að opna hana og maður vissi hverju maður ætti von á. Tappinn skaust upp í loft og stoppaði lengst fyrir aftan. Mér hreinlega brá þegar ég upplifði kraftinn frá þessu,“ segir Hrafn.

Einn sem fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við vegna málsins í síðustu viku þurfti að fara í aðgerð eftir að hafa fengið skurð á augað vegna tappa af Floridanda-flösku.

Hann lagði fram kæru gegn Ölgerðinni vegna málsins og íhugaði önnur ,sem hlaut áverka vegna tappa sem skaust í andlit hennar, einnig að leita réttar síns.



Tengdar fréttir

Neytendur hvattir til að farga Floridana í plastflöskum

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. hefur tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Floridana ávaxtasafasafa í plastflöskum þar sem dæmi eru um að yfirþrýstingur hafi myndast í flöskunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×