Innlent

Allt lögum samkvæmt hjá Sjanghæ á Akureyri

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þann 30. ágúst síðastliðinn greindi RÚV frá því að grunur væri um vinnustaðamansal á staðnum.
Þann 30. ágúst síðastliðinn greindi RÚV frá því að grunur væri um vinnustaðamansal á staðnum. Vísir/Pjetur
Starfsmenn veitingastaðarins Sjanghæ á Akureyri fá greitt samkvæmt kjarasamningum og launatöxtum sem gilda á veitingahúsum. Þetta er niðurstaða vinnustaðaeftirlits stéttarfélagsins Einingar-Iðju.

Þann 30. ágúst síðastliðinn greindi RÚV frá því að grunur væri um vinnustaðamansal á staðnum. Talið væri að starfsfólkið fengi greiddar þrjátíu þúsund krónur á mánuði í laun og fengi að borða matarafganga af veitingastaðnum.

Sjá einnig:Eigandi veitingastaðar á Akureyri grunaður um vinnumansal

Í vinnustaðaeftirliti var óskað eftir ráðningarsamningum, launaseðlum, bankastaðfestingum og öðrum gögnum tengdum réttindum starfsfólks og var orðið við þeirri ósk. Þá var einnig óskað eftir viðbótargögnum sem bárust þann 4. September.

„Búið er að yfirfara þau gögn sem bárust félaginu um málefni starfsmanna veitingastaðarins Sjanghæ. Niðurstaða félagsins er að þær upplýsingar sem fram koma í gögnunum standast almenna kjarasamninga og launataxta sem gilda á veitingahúsum,“ segir í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

Fengu öll gögn

Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju segir að sögusagnir um ólöglega lág laun á staðnum hafi einnig borist til þeirra.

„Við vorum líka búin að heyra þetta en við fórum bara í reglubundið eftirlit þarna til að athuga hvort eitthvað væri að og fengum öll gögn um málið. þetta er allt greitt eftir kjarasamningum. Allir á launaskrá og svo framvegis,“ segir Anna í samtali við Vísi.

Hún segir að allt sem við komi félaginu hafi verið í góðu lagi á staðnum.

„Ég veit ekki hvernig er með skatta og svoleiðis en allt virtist vera í góðum málum varðandi okkur.“

Ekki frá stéttarfélaginu komið

Í tilkynningu segist félagið vilja taka fram að upplýsingar sem birtust í umfjöllun um málið hafi ekki komið frá starfsmönnum þess.

„Þetta vorum alls ekki við sem fórum með þetta upphlaup þarna. Að okkar hálfu er málinu lokið. Það virðist sem Ríkisútvarpið hafi hlaupið á sig,“ segir Anna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×