Körfubolti

Leikurinn í kvöld verður sá langskemmtilegasti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson átti sinn besta leik á EM gegn Slóveníu í gær. Fyrirliðinn skoraði 14 stig.
Hlynur Bæringsson átti sinn besta leik á EM gegn Slóveníu í gær. Fyrirliðinn skoraði 14 stig. vísir/getty
Íslenska liðið átti einn sinn besta leikhluta og sinn besta endakafla á leik í Evrópumótinu í gær en baráttan er ennþá mjög ójöfn. Ísland vann fyrsta leikhlutann á móti ósigruðu liði Slóvena en eins og í hinum leiknum áttu mótherjarnir alltaf til nóg af aukagírum þegar leið á leikinn.

Góð innkoma ungra stráka af bekknum hjálpaði til við að laga stöðuna í lokin og koma muninum niður í 27 stig en í leikjunum á undan jókst munurinn alltaf út leikinn.

„Við höfum engu að tapa. Við erum að spila hver fyrir annan og við erum að spila fyrir fólkið sem er komið hingað. Við reynum allt sem við getum til þess að það geti átt skemmtilega daga í Helsinki. Ekki gátum við samt fært þeim sigur í dag en við urðum að reyna að sýna eins góðan bolta og við gátum,“ sagði Hlynur eftir leikinn.

„Fyrsti leikhlutinn var mjög góður og við getum þetta alveg. Við erum bara ekki með alveg næg gæði til þess að geta þetta í 40 mínútur. Vonandi er þetta bil að minnka og þó þetta séu verri úrslit en voru í Berlín þá er þetta ekki bara eitthvert svartnætti,“ sagði Hlynur og hann vildi hrósa ungu strákunum í liðinu sem margir gerðu góða hluti á móti slóvensku stjörnunum í gær.

Tryggvi Snær er að spila á sínu fyrsta stórmóti.Vísir/Getty
Einn besti skóli sem hægt er að fá

„Tryggvi og Elvar voru mjög góðir og það var jákvætt á móti Frökkunum að Kristófer kom inn og spilaði frábærlega og með mikla orku. Hann kemur með nýja dýnamík. Tryggvi er að fá einn besta skóla sem hægt er að fá í þessum leikjum. Martin og Haukur eru vonandi að fara að spila á þessu stigi um ókomin ár,“ sagði Hlynur.

„Það er margt gott að gerast og þessir strákar eiga eftir að taka þetta með sér í ferilinn. Þetta er mjög mikilvægt. Ég var ekki að spila á þessu getustigi 23 ára. Ég fékk aldrei að kynnast þessu og var alltaf að harka á móti Lúxemborg og svoleiðis löndum á þessum aldri,“ sagði Hlynur sem er orðinn 35 ára gamall.

Íslenska liðið hefur ekki náð að standa í mótherjum sínum eins og það gerði á EM í Berlín fyrir tveimur árum. Uppskeran er í raun sú hin sama eða tap í hverjum leik en töpin eru miklu stærri og góðu kaflarnir styttri og færri.

Hlynur á vítalínunni.vísir/getty
Berlín kemur ekki aftur

„Það er erfiðara því að við náum ekki alveg sama mómentinu. Ég veit ekki af hverju það er. Þetta byrjaði strax í fyrsta leik á móti Þýskalandi síðast og það er eitthvað sem hefur verið aðeins öðruvísi. Það er ekkert slæmt innan liðsins heldur voru kannski öðruvísi væntingar og umræða fyrir mótið,“ sagði Hlynur og bætti við:

„Núna var aðeins meira talað um að vinna leik og okkur langaði líka að taka næsta skref. Sama rósin sprettur aldrei aftur þótt önnur fegri skreyti veginn þinn. Það er bara þannig. Berlín kemur ekki aftur,“ sagði Hlynur.

Hann vill ekki að neinn leikmaður liðsins hiki neitt í síðasta leiknum. „Það er eins gott að láta bara vaða og ég vona að það geri sem flestir í síðasta leiknum. Við verðum bara að láta allt flakka,“ sagði Hlynur.

Fram undan er lokaleikur liðsins á mótinu sem er á móti Finnum í kvöld.

„Það verður geggjuð stemning og þetta verður langskemmtilegasti leikurinn. Ég skal alveg lofa því. Ég vona að allir okkar leikmenn, og við sem lið, njótum dagsins og spilum ógeðslega góðan bolta. Þá getum við gert ýmislegt,“ sagði Hlynur að lokum.


Tengdar fréttir

Frakkar unnu Pólverja

Frakkar unnu 75-78 sigur á Pólverjum í dag í æsispennandi leik í A-riðli Evrópumótsins í körfubolta.

Þriðji sigur Finna

Finnar unnu sinn þriðja sigur á Evrópumótinu í körfubolta í kvöld þegar þeir unnu Grikki 77-89.

Martin: Erum eins og gatasigti í vörninni

Martin Hermannsson var ekki sáttur með varnarleik Íslendinga í tapinu gegn Slóveníu á Eurobasket fyrr í dag. Íslenska liðið fékk á sig 37 stig í öðrum leikhluta.

Ívar: Menn fljótir að gagnrýna

Ívar Ásgrímsson, þjálfari kvennalandsliðsins í körfubolta og karlaliðs Hauka, fór yfir gengi Íslands á EM í körfubolta.

Hlynur: Ég reyndi aðeins að hreinsa til í hausnum

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, skoraði 14 stig á móti Slóvenum og náði sinni bestu frammistöðu í sóknarleiknum á Evrópumótinu í Helsinki.

Finnur: Þeir fundu lausnir allan tímann

Finnur Freyr Stefánsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands, var almennt ánægður með frammistöðu Íslands gegn Slóvenum á Evrópumótinu í körfubolta í dag, en sagði varnarleikinn vera helsta vandamál liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×