Viðskipti innlent

Hermann ráðinn nýr framkvæmdastjóri LSS

Atli Ísleifsson skrifar
Hermann Sigurðsson er með Bsc í viðskiptafræði frá viðskiptaháskólanum á Bifröst.
Hermann Sigurðsson er með Bsc í viðskiptafræði frá viðskiptaháskólanum á Bifröst. LSS
Hermann Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og mun hefja störf 15. desember næstkomandi.

Í tilkynningu frá LSS segir að Hermann hafi í átta ár starfað sem framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta. Bar hann ábyrgð á allri starfssemi samtakana og sat að auki í stjórn fjögurra  dótturfélaga og sá um að samhæfa aðgerðir á milli þeirra.

„Hermann sat í stjórn Æskulýðsráð á árunum 2015-2016 og sat þar í vinnuhóp um aðgerðaáætlunar stefnumótunar í æskulýðsmálum. Á undan því starfaði Hermann sem stjórnandi hjá Hagkaup.

Síðustu verkefni Hermanns voru að samhæfa aðgerðir á milli eininga við undirbúning, framkvæmd og frágang við eitt stærsta skátamót sinnar tegundar á Íslandi í júlí sl þ.e. World Scout Moot, sem er alþjóðlegt skátamót sem haldið var á vegum heimshreyfingarinnar á Íslandi fyrir aldurinn 18-25 ára. Þetta mót var jafnframt stærsta skátamót á heimsvísu hjá heimssamtökunum fyrir þetta aldursbil. Hermann sat í viðbragðsteymi BÍS sem tekur m.a. á barnaverndarmálum og óvæntum atvikum t.d. eins og Nóró veiru sem kom upp í byrjun ágúst þar sem ungir skátar voru fluttir í fjöldahjálparstöð vegna sinna veikinda.

Hermann er 36 ára Garðbæingur, er kvæntur Ósk Auðunsdóttur kennara, á tvær dætur á aldrinum 3 og 4 ára og það þriðja er væntanlegt í september. Hermann hefur verið skáti frá barnsaldri og starfaði sem björgunarsveitarmaður í Garðabæ,“ segir í tilkynningunni.

Hermann segir það vera forréttindi að starfa fyrir Landssamtök sem hafi það að markmiði  að styðja við okkar hversdagshetjur. „Þetta eru hetjurnar okkar sem hjálpa okkur þegar við þörfnumst þeirra einna mest. Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þau fjölbreyttu verkefni innan LSS sem snúa flest að því bæta kjör okkar félagsmanna og koma okkar góða boðskap á framfæri,“ segir Hermann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×