Lífið

Fyrsta myndin af Rami Malek sem Freddie Mercury

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rami Malek mun fara með hlutverk Mercury.
Rami Malek mun fara með hlutverk Mercury.
Leikarinn Rami Malek mun fara með aðalhlutverkið í kvikmyndin Bohemian Rhapsody sem fjallar sem er einskonar ævisaga um söngvarann Freddie Mercury.

Mercury var söngvari sveitarinnar Queen en hann lést árið 1991 af völdum alnæmis.

Entertainment Weekly birtir fyrstu myndina af Rami Malek í hlutverkinu og virðist hann smellpassa sem Mercury. Rami Malek sló fyrst í gegn í þáttunum Mr. Robot.

Bohemian Rhapsody verður frumsýnd í desember árið 2018.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×