Viðskipti innlent

Árnína Steinunn og Elsa Björk til Nasdaq verðbréfamiðstöðvar

Atli Ísleifsson skrifar
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir og Elsa Björk Gunnarsdóttir.
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir og Elsa Björk Gunnarsdóttir. nasdaq
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir lögmaður og Elsa Björk Gunnarsdóttir hafa verið ráðnar til starfa hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð.

Í tilkynningu segir að Árnína snúi aftur til starfa fyrir Nasdaq eftir að hafa starfað síðast hjá Samtökum fjármálafyrirtækja og þar áður á lögfræðisviði Actavis Group í Sviss. 

„Fyrir það, á árunum 2004 til 2010 var hún forstöðumaður lögfræðisviðs Nasdaq kauphallarinnar á Íslandi. Árnína Steinunn útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Íslands árið 2001 og fékk réttindi sem héraðsdómslögmaður árið eftir. Verkefni hennar hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð munu aðallega lúta að undirbúningi að nýju starfsleyfi fyrir Nasdaq verðbréfamiðstöð samkvæmt nýrri, evrópskri reglugerð um verðbréfamiðstöðvar (CSDR) sem tekur gildi á næsta ári. Árnína Steinunn er gift Kristjáni Árna Jakobssyni, VP Finance hjá Alvotech hf. og eiga þau einn son.

Elsa Björk Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til Nasdaq verðbréfamiðstöðvar. Elsa Björk hefur áratuga reynslu á fjármálamarkaði, en hún hefur starfað sem sem sérfræðingur í m.a. verðbréfaþjónustu, verðbréfauppgjöri og fyrirtækjaaðgerðum (e. corporate actions) hjá Arion banka og þar áður sem samskiptastjóri við viðskiptavini hjá Arion verðbréfavörslu.  Verkefni Elsu Bjarkar hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð munu helst lúta að því að efla þjónustu og samskipti við viðskiptavini Nasdaq verðbréfamiðstöðvar og vinna að innleiðingu á nýju verðbréfauppgjörskerfi. Elsa Björk mun hefja störf seinni hluta október. Hún er gift Jakobi Kristjánssyni, sviðsstjóra öryggissviðs og stjórnarformanni hjá Lotu ehf. og eiga þau tvö uppkomin börn,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×