Viðskipti innlent

ESÍ lagt niður fyrir árslok

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/anton brink
Stefnt er að því að setja Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) í slit fyrir lok ársins. Tafir hafa orðið á slitum félagsins, sem heldur á milljarða króna eignum sem ríkissjóður leysti til sín eftir bankahrunið 2008, en stjórnendur Seðlabankans höfðu áður gert ráð fyrir að leggja félagið niður á síðasta ári.

Fram kemur í bréfi Seðlabankans til umboðsmanns Alþingis, sem fjallað er um í nýbirtri ársskýrslu umboðsmanns, að frágangur mála sem tengist ESÍ og dótturfélögum þess, þar með talin dómsmál, hafi orðið til þess að upphafi slita á félaginu hafi verið frestað fram á þetta ár.

Verulega hefur dregið úr starfsemi ESÍ, en í bréfinu segir að stærð efnahagsreiknings félagsins hafi numið um 43 milljörðum króna í lok síðasta árs borið saman við 133 milljarða í lok árs 2015. Mestu hafi munað að ESÍ gerði upp skuldir sínar við Seðlabankann með afhendingu eigna og reiðufé.

Seðlabankinn segir að til þess að áfram yrði mögulegt að halda eignum sem voru komnar til vegna falls gömlu bankanna aðgreindum frá efnahagsreikningi bankans, þá hafi um síðastliðin áramót verið ákveðið að ljúka fyrst slitum á dótturfélögum ESÍ og bíða með að slíta félaginu sjálfu þar til niðurstaða í síðasta dómsmáli félagsins liggi fyrir.

Slitaferli dótturfélaganna hófst fyrr á árinu og er stefnt að því að ljúka því á haustmánuðum. Í kjölfarið mun ESÍ verða sett í slit.

Umboðsmaður Alþingis hefur áður látið í ljós það álit sitt að Seðlabankinn hafi ekki haft skýra lagaheimild til þess að setja ESÍ á stofn. Í bréfi umboðsmanns frá því í október 2015 sagði að mikilvægt hefði verið, ef það væri á annað borð vilji stjórnvalda að viðhalda því fyrirkomulagi að verkefni Seðlabankans væru falin sérstöku einkahlutafélagi í eigu bankans, að leita eftir afstöðu Alþingis til þess hvort setja ætti slíka heimild í lög.

Bankaráð Seðlabankans tók undir þessar athugasemdir og sagði í bréfi til fjármála- og efnahagsráðuneytisins að ástæða kynni að vera til þess að styrkja lagagrundvöll ESÍ. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×