Körfubolti

Leiðtogar íslenska liðsins hugsa sinn gang og gáfu ekkert út

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson á ferðinni í leiknum gegn Finnlandi í gær. Óvíst er hvort þetta var hans síðasti landsleikur.
Landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson á ferðinni í leiknum gegn Finnlandi í gær. Óvíst er hvort þetta var hans síðasti landsleikur. vísir/epa
Ungu strákarnir og þjálfarinn Craig Pedersen vonast eftir því að þeir Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson haldi áfram með íslenska landsliðinu og að lokaleikur Íslands á EM í Helsinki í gær verði ekki síðasti leikur þessara miklu leiðtoga og frábæru leikmanna með íslenska körfuboltalandsliðinu. Það voru hins vegar engar stórar yfirlýsingar í fjölmiðlaviðtölum eftir leikinn í Hartwall Arena í gærkvöldi.

Íslenska liðið stóð sig frábærlega á móti Finnum í gær og var um tíma níu stigum yfir eftir að liðið hélt Finnum stigalausum í meira en sex mínútur samfellt.

„Þetta var vörnin sem við vorum búnir að bíða eftir. Það er rosalega pirrandi að það sé ekki nóg og að hugsa til þess að við áttum að vinna þennan leik,“ sagði Martin Hermannsson eftir leikinn.

Finnarnir áttu hins vegar svör í lokin og voru með hinn tvítuga Lauri Markkanen sem var íslenska liðinu mjög erfiður í þessum leik með 23 stig á 23 mínútum. Finnar unnu leikinn á endanum með fjórum stigum, 83-79.

„Þetta er hrikalega sárt tap og það er erfitt að kyngja þessu,“ sagði niðurbrotinn Jón Arnór Stefánsson eftir leikinn í gær. „Ég verð örugglega léttari á morgun en það jákvæða sem maður finnur fyrir núna er stemningin í höllinni og hvernig liðið spilaði og lagði sig fram í dag. Við vorum nálægt því að ná sigri,“ sagði Jón.

Íslenska liðið brotnaði ekki og hikaði aldrei í gær eins og oft áður í mótinu og Finnar, sem eru með annað besta lið riðilsins, gátu þakkað fyrir að boltinn og dómarar féllu með þeim í lokin.

„Ég er bara svo ótrúlega svekktur að ná ekki að landa sigrinum fyrir okkur sem höfum verið að berjast fyrir þessu allan þennan tíma. Ég get samt ekki annað en verið ótrúlega ánægður með þennan leik,“ sagði Jón Arnór. En hvað með mótið?

Jón Arnór verst Lauri Markkanen.vísir/epa
„Ég er búinn að gleyma leikjunum á undan og hugsa bara um þennan leik og hvað var gaman að spila með mínum liðsfélögum í dag og fyrir framan þessa ótrúlegu áhorfendur,“ sagði Jón. En hvað með framhaldið með landsliðinu?

„Ef ég er ennþá nógu góður þá kemur alveg til greina að ég verði með. Þessir gluggar heilla og það er meira vit í því að vera með en ekki. Það bara kemur í ljós. Ég tek smá tíma eftir þetta mót og hugsa minn gang,“ sagði Jón Arnór og á þá við tvö landsleikjahlé á komandi tímabili í nóvember og febrúar. Hlynur svaraði á svipuðum nótum og það var að heyra á Loga Gunnarssyni að hann vildi spila áfram.

„Við erum ekkert að yngjast og það kemur að þessum kynslóðarskiptum. Við eigum samt alveg nóg að gefa þessu liði,“ sagði Jón.

Martin Hermannsson var bæði stigahæstur (12,8) og stoðsendingahæstur (4,8) hjá íslenska liðinu á mótinu og hann vill sjá reynsluboltana halda áfram. „Ég vil halda í þessa gömlu eins lengi og hægt er. Það sást í dag að Jón Arnór er ennþá með þvílík gæði, baráttán hans Hlyns smitar endanlaust út frá sér og þótt að Logi spilaði ekki mikið þá er það gott fyrir sálina að hafa hann á bekknum. Hann hjálpar okkur ungu leikmönnunum mikið,“ sagði Martin.

Haukur Helgi Pálsson, næststigahæsti leikmaður íslenska liðsins á EM í Helsinki, talaði á svipuðum nótum.

„Það er líklega ákveðin kynslóðarskipti í gangi þótt ég myndi helst ekki vilja það. Mér finnst geggjað að spila með þessum strákum og sérstaklega þessum eldri. Maður á alltaf að spila á besta liðinu sama þótt séu orðnir fertugir. Ef þeir betri en einhverjir aðrir þá er það bara þannig. Við erum samt með flotta unga stráka sem eru að koma upp,“ sagði Haukur.

Landsliðsþjálfarinn Cragi Pedersen vonast líka eftir því að Jón og Hlynur taki slaginn áfram. „Það er best að þeir fái smá tíma til að meta stöðuna og finni réttu tilfinninguna. Það er rangur tími að spyrja þá núna en ég vona að þeir haldi áfram. Þeir eru leiðtogarnir í liðinu og þegar liðið lendir í mótlæti þá eru það þeir sem sýna réttu leiðina,“ sagði Craig.

Jón Arnór og Hlynur ætla að taka sér sinn tíma í þessa stóru ákvörðun. Hver veit nema að sigur í gærkvöldi hefði verið réttur tímapunktur til að kveðja en það breytir ekki því að það eru forréttindi fyrir okkur Íslendinga að sjá þessa miklu höfðingja klæðast landsliðstreyjunni. Hver veit nema að við sjáum meira af þeim í númerum 8 og 9 í nóvember og febrúar.


Tengdar fréttir

Hörður Axel: Stoltur af okkur

Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segist stoltur af frammistöðu íslenska landsliðsins í naumlegu tapi gegn Finnum í lokaleik liðsins á EM í körfubolta í Finnlandi í dag.

Jón Arnór ekki búinn að ákveða neitt

Jón Arnór Stefánsson, einn af máttarstólpum íslenska landsliðsins í körfubolta, segir að íslenska landsliðið geti gengið stolt frá borði eftir EM í Finnlandi. Jón veit ekki hvort hann spili áfram með landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×