Viðskipti innlent

Björn tekur við af Kristjáni hjá Kynnisferðum

Atli Ísleifsson skrifar
Björn Ragnarsson tekur tímabundið við starfi framkvæmdastjóra.
Björn Ragnarsson tekur tímabundið við starfi framkvæmdastjóra. kynnisferðir
Kristján Daníelsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Kynnisferða. Í tilkynningu segir að stjórn fyrirtækisins og Kristján hafi komist um samkomulag þessa efnis, en Kristján hefur stýrt starfi Kynnisferða undanfarin sex ár.

„Björn Ragnarsson, rekstrarstjóri Hópbifreiða Kynnisferða, mun tímabundið taka við sem framkvæmdastjóri félagsins þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn.

Björn er viðskiptafræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu sem fyrrum fjármálastjóri Bláa lónsins, framkvæmdastjóri bílaleigunnar ALP og framkvæmdastjóri bílasviðs Bílabúðar Benna,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×