Formúla 1

Porsche hefur áhuga á Formúlu 1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lutz Mescke, fjármálastjóri Porsche.
Lutz Mescke, fjármálastjóri Porsche. Vísir/Getty
Þýski bílaframleiðandinn Porsche hefur gefið það út að áhugi sé innanhúss fyrir þátttöku í Formúlu 1. Porsche vill skoða innkomu árið 2021 með nýrri vélareglugerð.

Porsche hefur áveðið að hætta þátttöku í WEC (Heimsmeistarakeppninni í þolakstri). Fjármagnið sem kostar að halda úti liðið í WEC er svipaður og við að halda úti Formúlu 1 liði en virðið fyrir vörumerkið er meira í Formúlu 1 enda talsvert vinsælli mótaröð, þótt WEC sé sífellt að sækja í sig veðrið.

Porsche hefur þegar tekið þátt í fundum um framtíðarstefnu Formúlu 1 í vélarmálum. Núverandi vél, V6 tvinnvél mun vera um borð í bílunum út árið 2020 en eftir það er óljóst hvað verður og margar mismunandi skoðanir uppi um það.

Ross Brawn, tæknistjóri FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandsins hefur sagt að það væri gáfulegt að vélarnar yrðu ódýrari, háværari og einfaldari eftir 2020. Hvað verður er þó óljóst enn sem komið er.

Lutz Meschke, fjármálastjóri Porsche hefur sagt að Formúla 1 gæti verið „réttur staður til að vera á“ fyrir akstursíþróttadeild fyrirtækisins.

„Formúla 1 er alltaf gott umhugsunarefni og ég held að það sé merkileg og góð umræða að eiga sér stað í tengslum við nýjar vélar. F1 gæti verið einn af réttu stöðunum til að vera á,“ sagði Meschke í samtali við Motorsport.

Meschke bætti við að Porsche myndi taka þátt sem vélaframleiðandi en ekki sem lið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×