Innlent

Auka verulega stuðning við flóttafólk

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þorsteinn Víglundsson með sýrlenskum flóttamönnum sem íslensk stjórnvöld buðu að setjast að hér á landi um síðustu áramót.
Þorsteinn Víglundsson með sýrlenskum flóttamönnum sem íslensk stjórnvöld buðu að setjast að hér á landi um síðustu áramót. Vísir/Stefán
Útgjöld til móttöku flóttamanna og hælisleitenda sem veitt er hæli hér á landi munu meira en tvöfaldast á næsta ári. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fer upphæðin úr 150 milljónum í 410 milljónir.

„Það er verið að auka verulega áhersluna á málaflokkinn. Þar er bæði aukin móttaka kvótaflóttamanna á milli ára en ekki er síður verið að verja fjármagni til þess að bæta frekar móttökur þeirra sem hér fá hæli,“ segir Þorsteinn Víglundsson velferðarráðherra.

Markmiðið sé að samræma betur þá þjónustu, sem veitt er þeim sem fá hæli hér á landi, við þá þjónustu sem kvótaflóttamönnum er veitt þegar kemur að húsnæðisleit, atvinnuleit og öðrum úrræðum. Þorsteinn staðfestir að verið sé að ríflega tvöfalda upphæðina milli ára.

Sú verkaskipting er höfð meðal ráðuneyta í málefnum innflytjenda og hælisleitenda að dómsmálaráðuneytið er ábyrgt fyrir Útlendingastofnun og ákvörðun um það hverjir fá hér hæli og hverjir ekki. En í málefnum kvótaflóttamanna marka utanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið stefnuna, hversu margir flóttamenn koma og hvaðan þeir koma. Eins og fram kom í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu í síðustu viku hefur sú stefna verið mörkuð fyrir næsta ár. Tekið verður á móti 50 flóttamönnum, einkum fólki frá Sýrlandi og hinsegin flóttamönnum.

Velferðarráðuneytið er síðan ábyrgt fyrir kvótaflóttamönnunum þegar þeir eru komnir til landsins og hælisleitendum sem hefur verið veitt hæli. „Það er verið að tala um aðgerðir til að tryggja sem árangursríkasta aðlögun. Það er verið að tala um íslenskukennslu, aðstoð við húsnæðisleit, aðstoð við atvinnuleit og svo framvegis. Til að tryggja það að fólk komist sem hraðast inn í samfélagið og verði virkir samfélagsþegnar,“ segir Þorsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×