Skoðun

Opið bréf til yfirvalda í velferðarmálum

Eyjólfur Magnússon Scheving og Garðar Baldvinsson skrifar
Höndin hefur frá fyrstu tíð haft það að meginmarkmiði sínu að hafa sem minnsta yfirbyggingu – og meginhugsunin er að fara til fólksins og gera heimilið að miðstöð hjálparstarfsins. Höndin mannræktarsamtök hefur núna starfað á þessum grundvelli í tólf ár. Hugmyndafræði Handarinnar byggir á aðstoð við lítilmagnann í samfélaginu. Höndin fer til skjólstæðinga sinna og aðstoðar þá, eins konar heimaþjónusta. Margir skjólstæðingar Handarinnar búa einnig úti á landi, á Árborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og jafnvel í Stykkishólmi.

Stór hluti af starfi Handarinnar er líka viðtalsþjónusta, bæði er skjólstæðingum boðið heim til formanns félagsins og líka eru viðtöl heima hjá þeim. Enn fremur er snar þáttur í starfinu að ræða við fólk í síma, meðal annars til að fylgja eftir aðstoðinni sem veitt er úti á vettvangi en líka til að fylgjast með hvernig skjólstæðingunum gengur að fóta sig í lífinu á nýjan leik.

Þessi hugmyndafræði um að fara með þjónustuna út til fólksins þar sem þörfin er mest er ekki uppfinning Handarinnar en því miður hefur samfélagið færst æ meira frá slíkri þjónustu. Þess vegna er það okkur ánægjuefni að Landspítalinn er nú að hefjast handa um að færa hluta af sinni þjónustu út til fólksins, að fara heim til fólks og veita því þjónustu og aðstoð að einhverju leyti þar, enda betra og ódýrara fyrir samfélagið og alla.

Styrkurinn lækkaður

Eins og gefur að skilja fylgja þessu starfi veruleg útgjöld. Höndin hefur fengið framlög frá opinberum aðilum, meðal annars Reykjavíkurborg sem og fyrirtækjum og einstaklingum og erum við þakklát öllum þessum góðu aðilum. Stærstu styrkirnir hafa ennfremur komið frá Alþingi þangað til minni styrkir voru færðir til ráðherra árið 2009. Hafa framlög til Handarinnar farið hríðlækkandi síðustu ár. Á þessu ári var styrkur velferðarráðherra til dæmis lækkaður úr tveimur milljónum í eina milljón. Þrátt fyrir umleitun félagsins hafa ekki fengist nein svör frá ráðherra eða ráðuneyti til skýringar á þessari lækkun. Fari svo að framlagið hækki ekki á næsta ári er stór hætta á að starfsemi Handarinnar leggist af og tugir skjólstæðinga verði þá aftur úti á guði og gaddinum.

Höndin hefur ekki fólk á launum við að sinna þjónustunni sem hún veitir. Sum félög fá einnig og jafnframt stór framlög frá hinu opinbera annars staðar frá til að standa straum af launum starfsmanna og húsaleigu, jafnvel til margra verkefna í senn, en ekki er hægt að fá nánari upplýsingar um slíkt þrátt fyrir eftirgrennslan, þótt stjórnsýslan eigi að vera bæði opin og gagnsæ núorðið.

Það er auðvitað kraftaverki líkast að Höndin skuli hafa haldið úti starfsemi sinni í tólf ár með þessum litlu fjármunum sem hún hefur haft yfir að ráða. Ráðdeild forráðamanna félagsins hefur verið með eindæmum. Þess vegna er enn furðulegra að stjórnvöld skuli nú á þessu ári skerða framlög til starfs Handarinnar um helming og stefna þessari mikilvægu aðstoð við lítilmagna samfélagsins þannig í voða.

 

Eyjólfur Magnússon Scheving er stofnandi Handarinnar.

Garðar Baldvinsson er ritari Handarinnar.




Skoðun

Sjá meira


×