Viðskipti innlent

Björn Ingi hættur hjá Vefpressunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björn Ingi Hrafnsson hefur verið orðaður við endurkomu í stjórnmála en sveitarstjórnarkosningar verða næsta vor.
Björn Ingi Hrafnsson hefur verið orðaður við endurkomu í stjórnmála en sveitarstjórnarkosningar verða næsta vor. Vísir/Valli
Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi Pressunnar, hættir störfum hjá Vefpressunni ehf. í kjölfar kaupa Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns á félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu Björns Inga fyrir hönd Frjálsrar fjölmiðlunar og Pressunnar.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær keypti fyrirtækið Frjáls fjölmiðlun fjölmarga fjölmiðla af Pressunni og dótturfélögum hennar í vikunni. Í viðskiptunum felst að Frjáls Fjölmiðlun tekur yfir útgáfu DV, dv.is, Pressunnar, Eyjunnar, Bleikt, Birtu, doktor.is og 433.is auk sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN. 

„Kaupverðið er vel á sjötta hundrað milljónir króna og er greitt með reiðufé og yfirtöku skulda,“ segir í tilkynningunni. 

Allt starfsfólk viðkomandi fjölmiðla haldi störfum sínum eftir viðskiptin, utan að Björn Ingi hverfi til annarra starfa. Fyrst ætli hann í frí.

„Ég er gríðarlega stoltur af þessum viðskiptum og finn fyrir miklum létti,“ er haft eftir Birni Inga í fréttatilkynningunni. 

„Með þessari sölu tekst að greiða niður skuldir, að tryggja rekstur mikilvægra fjölmiðla í okkar samfélagi og tryggja hagsmuni kröfuhafa. Það höfum við gert og ég hygg að umfang þessara viðskipta komi ýmsum á óvart í ljósi þess að ýmsir hafa reynt að tala virði þessara fjölmiðla niður á opinberum vettvangi.“ 

Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður og eigandi Frjálsrar fjölmiðlunar, segir í tilkynningunni mikilvægt að Ísland eigi öfluga fjölmiðla. Hann hefur mikla reynslu af fjölmiðlarekstri og stýrði um skeið stærsta einkarekna fjölmiðlafyrirtæki landsins, Norðurljósum. 

„Ég hef fylgst með þessum rekstri og veit að þarna vinnur ákaflega hæft fólk. Framundan er spennandi tími, þar sem ég vonast til að sjá þessa fjölmiðla vaxa og dafna.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×