Tónlist

Kom Friðriki Ómar á óvart hvað Friðrik Dór á mikið af flottum lögum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Uppselt er á báða tónleika Friðriks Dórs í Hörpu á morgun.
Uppselt er á báða tónleika Friðriks Dórs í Hörpu á morgun. Vísir/ Óskar P.
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór heldur tvenna tónleika í Eldborg í Hörpu á morgun þar sem hann kemur fram með hljómsveit og bakröddum. Ísland í dag kíkti á æfingu hjá Frikka í dag og kvaðst hann hlakka mikið til morgundagsins.

„Ég hlakka bara rosalega mikið. Þetta eru held ég 20 lög svo það er meira en ég er vanur og margt að hugsa um,“ sagði Frikki sem mun ekki bara syngja á morgun heldur líka taka nokkur dansspor.

„Ég er drullustressaður en líka spenntur.“

Spurningin er samt hvort það sé ekki mesta pressan á hljóðmanninum í Hörpu á morgun eftir tækniklúðrið á tónleikum Rásar 2 á menningarnótt þegar Frikki tók lagið þar.

„Jú, ég er búinn að ná að koma því þannig fyrir að það er ekkert mér að kenna. Þetta er allt á hljóðmönnunum ef ég er eitthvað að skíta á mig,“ sagði Frikki léttur.

Friðrik Ómar sér um uppsetningu tónleikanna. Hann segir það frábært að vinna með öllu fólkinu sem kemur að þeim.

„Svo held ég að það kom fólki líka á óvart hvað hann á mikið af flottum lögum. Það kom allavega mér á óvart. Við æfðum fyrst hittarana en svo komu öll hin lögin og þau eru bara geðveik.“

Fyrri tónleikarnir hefjast klukkan 16 og þeir seinni klukkan 20 en uppselt er á þá báða.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×