Sport

Nú vill Aldo fara að boxa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jose Aldo er búinn að fá nóg af MMA.
Jose Aldo er búinn að fá nóg af MMA. vísir/getty
Jose Aldo hefur lítið annað gert en grenjað út af Conor McGregor síðan hann lét Írann rota sig á 13 sekúndum. Hann vill samt apa allt upp eftir honum.

Nú segir þjálfarinn hans að Aldo vilji losna undan samningi við UFC svo hann geti einbeitt sér að hnefaleikum.

Aldo hefur síðustu vikur verið í Kaliforníu að æfa box.

„Það hefur lengi verið hans draumur að vera atvinnumaður í hnefaleikum. Ef hann mætti ráða þá myndi hann klára sína UFC-bardaga á þrem mánuðum og síðan fara í hnefaleikana,“ sagði þjálfarinn Andre Pederneiras.

Aldo á fjóra bardaga eftir af samningi sínum við UFC. Ekki liggur fyrir hvenær hann berst næst.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×