Bíó og sjónvarp

Marvel-stjarna hraunar yfir Hollywood: Fékk ekki hlutverk fyrr en hún breytti nafninu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Chloe Bennet hefur slegið í gegn í sjónvarpsþáttum Marvel, Agents of Shield.
Chloe Bennet hefur slegið í gegn í sjónvarpsþáttum Marvel, Agents of Shield. Vísir/Getty
Marvel-stjarnan Chloe Bennet, sem leikur í sjónvarpsþáttunum Agents of SHIELD, segir að hún hafi þurft að breyta nafni sínu úr Chloe Wang til þess að fá hlutverk sem leikkona. Hún gagnrýnir Hollywood-harðlega. BBC greinir frá.

Bennet svaraði spurningu fylgjenda hennar á Instagram. Var hún spurð af hverju hún hafi skipt um eftirnafn.

„Í Hollywood er kynþáttahatur landlægt. Þeir vildu ekki ráða mig í nein hlutverk með eftirnafn sem þeim fannst óþægilegt,“ skrifaði Bennet.

Faðir Bennet er frá Kína og bjó hún þar um tíma. Segir hún að með því að skipta um eftirnafn hafi hún ekki verið að fela bakgrunn sinn, hún hafi einfaldlega þurft að fá vinnu.

Bennet hefur einbeitt sér að því að vekja athygli á þessari staðreynd en markmið hennar er að enginn þurfi að fela bakgrunn sinn til þess að fá vinnu í Hollywood. Hefur hún stofnað samtök sem vinna að þessu markmiði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×