Innlent

Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna Menningarnætur innan við tuttugu milljónir

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Á annað hundrað þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt þegar mest var. Forstöðukona höfuðborgarstofu segir erfitt að festa hendur á hver heildarkostnaður Menningarnætur sé en beinn kostnaður borgarinnar við hátíðina sé innan við tuttugu milljónir.

Dagskráin náði hámarki upp úr klukkan ellefu í gær með glæsilegri flugeldasýningu við Miðbakka sem hátíðargestir gátu séð víða að. Aðsókn í miðbæinn var jöfn og þétt frá hádegi og fram á kvöld og einkenndi mikil gleði og stemmning Menningarnótt og lék veðrið við fólk sem sótti meira en þrjú hundruð viðburði sem í boði voru.

Mikill erill var hjá slökkviliði og lögreglu í gærkvöldi og í nótt, mest vegna ölvunar og ástandi fólks en fangageymslur voru fullar á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í morgun og vista þurfti nokkra í fangageymslum í Hafnarfirði.

Mikill fjöldi ungmenna sótti hip hop tónleika á Ingólfstorgi og segir lögreglan að eitthvað hafi verið um unglingadrykkju sem tekið hafi verið á. Þá þurfti lögreglan nokkrum sinnum að rýma yfirgefna byggingu sem stendur við Ingólfstorg en þar höfðu unglingar komið sér fyrir.

Eftir að dagskrá lauk í gær gekk hratt að koma fólki heim og gekk umferð áfallalaust fyrir sig. 

Forstöðukona höfuðborgarstofu er afar sátt við gærdaginn.

„Ég eiginlega svíf um á rósrauðu skýi. Það má eiginlega bara segja það. Mér finnst ég varla snerta jörðina,“ segir Áshildur Bragadóttir, forstöðukona Höfuðborgarstofu sem ber ábyrgð á Menningarnótt.

Einungis þriggja manna viðburðarteymi sér um undirbúning menningarnætur en gríðarlegur fjöldi sér um framkvæmdina.

„Þetta er auðvitað viðburður sem er framkvæmdur af verslunareigendum, veitingahúsaeigendum í miðborginni, íbúum miðborgarinnar. Það eru í rauninni allir sem vettlingi geta valdið í miðborginni og á því svæði sem að taka þátt í þessu,“ segir Áshildur.

Áshildur segir beinan kostnað Reykjavíkurborgar í tengslum við Menningarnótt vera óverulegan miðað við stærð og umfang.

„Ég held að Reykjavíkurborg er að leggja innan við tuttugu milljónir í hátíðina með öllu. Flugeldasýningu með stuðningi Landsbankans sem að þeir setja inn í viðburðahald í samstarfi við okkur,“ segir Áshildur.

Áshildur segir að erfitt sé að festa hendur á hver heildar kostnaður Menningarnætur er sé að til tekið.

„Ég get alveg ímyndað mér ef við myndum reyna að festa fingur á að þetta væri kannski á sjötta eða sjöunda tug milljóna ef að allt væri tekið saman og auðvitað kostar þetta sitt en ég held að það sé hverrar krónu virði,“ segir Áshildur.


Tengdar fréttir

Á annað hundrað þúsund nutu veðurblíðunnar

Talið er að á annað hundrað þúsund manns hafi komið saman í miðborg Reykjavíkur í gær til að sækja þá rúmlega 300 viðburði sem í boði voru á Menningarnótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×